Ingveldur Gísladóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingveldur Gísladóttir húsfreyja á Skíðbakka í A-Landeyjum, en síðan á Kirkjubæ í Eyjum fæddist 1. apríl 1791 og lést 12. apríl 1821.
Foreldrar hennar voru Gísli Ólafsson bóndi í Ormskoti u. Eyjafjöllum 1801, tómthúsmaður á Gjábakka og í Gíslahjalli, f. 1754, d. 15. júní 1829 í Gvendarhúsi, og kona hans Þorbjörg Ólafsdóttir húsfreyja í Ormskoti og í Gíslahjalli, f. 1760, d. ekkja í Gvendarhúsi 20. október 1830.

Ingveldur giftist Guðmundi 1810. Hún var síðari kona hans. Þau bjuggu á á Skíðbakka 1812-1816.
Þau fluttust til Eyja 1816 og bjuggu á Kirkjubæ meðan Guðmundi entist líf, en hann dó 1820. Hún lést 1821 á Gjábakka, 29 ára af „Innanmeinum“.

Maður Ingveldar, (16. nóvember 1810), var Guðmundur Ólafsson bóndi í A-Landeyjum, síðan á Kirkjubæ, f. 1765, d. 3. febrúar 1820.
Börn þeirra voru:
1. Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Norður-Fossi í Mýrdal, f. 25. október 1812, d. 10. febrúar 1886.
2. Guðmundur Guðmundsson vinnumaður í Dölum, f. 19. júlí 1814, d. 29. júlí 1842.
3. Ingunn Guðmundsdóttir, f. 24. september 1816 í Eyjum. Mun hafa dáið ung, (dánarskrár 1816 skortir).
Stjúpbörn Ingveldar í Eyjum voru:
4. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Steinshúsi, f. 1786, d. 16. febrúar 1829, gift Steini Guðmundssyni tómthúsmanni.
5. Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja í Dölum, f. 1787, d. 14. nóvember 1848, gift fyrr Jóni Helgasyni, síðar Einari Jónssyni eldri.
6. Ingveldur Guðmundsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 11. október 1791, d. 30. júní 1841, gift Ólafi Björnssyni bónda.
7. Ólafur Guðmundsson bóndi og smiður á Kirkjubæ, f. 17. janúar 1798, d. 14. júlí 1869, kvæntur fyrr Helgu Ólafsdóttur húsfreyju, síðar Guðrúnu Pálsdóttur.
8. Emerentíana Guðmundsdóttir húsfreyja í Gularási í A-Landeyjum og víðar, f. 30. janúar 1799, d. 30. maí 1866. Hún var vinnukona í Kornhól í Eyjum 1822.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.