Ingigerður Guðnadóttir (Eyjarhólum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ingigerður Guðnadóttir.

Ingigerður Guðnadóttir á Eyjarhólum, húsfreyja fæddist 6. janúar 1901 á Sauðagerði í Stokkseyrarsókn og lést 31. október 1988 á Borgarspítalanum.
Foreldrar hennar voru Guðni Jónsson sjómaður og bóndi í Sauðagerði, f. 24. mars 1864, d. 7. september 1935, og kona hans Guðríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 17. ágúst 1891, d. 12. janúar 1952.

Ingigerður var með foreldrum sínum í æsku, var vinnukona í Sauðagerði 1920.
Hún var í kaupavinnu í Kaldaðarnesi og Skálholti, leitaði sér síðar atvinnu í Eyjum.
Þau Vilmundur ráku búskap á Eyjarhólum með kúm og hænsnum og annaðist Ingigerður hann að mestu.

Þau giftu sig 1927, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Ráðagerði við Skólaveg 19 við fæðingu Guðna 1926, í Höfða við Hásteinsveg 21 1927, á Hvoli við Heimagötu við fæðingu Kristjáns 1930, en komin að Eyjarhólum við Hásteinsveg 20 í lok ársins og þar bjuggu þau lengst og síðast.
Þau fluttu norður á Stóru-Brekku í Fljótum 1940 og ráku þar búskap ásamt tveim systkinum Vilmundar til 1943, en þá fluttu þau að Illugastöðum í sömu sveit og bjuggu þar til 1955.
Þau fluttu til Hafnarfjarðar og bjuggu þar síðan.
Vilmundur lést 1964 og Ingigerður 1988.

I. Maður Ingigerðar, (15. maí 1927 á Stóra-Hrauni í Árn.), var Vilmundur Kristjánsson frá Stóru-Brekku í Fljótum í Skagafirði, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, bóndi, síðast iðnverkamaður, f. 6. mars 1901 á Einarsstöðum í Eyjafirði, d. 6. júní 1964 í Hafnarfirði.
Börn þeirra:
1. Guðni Vilmundarson starfsmaður hjá Íslenska álfélaginu í Straumsvík, f. 16. desember 1926 í Ráðagerði, d. 6. janúar 2015. Kona hans Svava Gísladóttir, látin.
2. Kristján Vilmundarson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 9. júní 1930 á Hvoli. Kona hans Erla Skagfjörð Jósefsdóttir.
3. Ásta Guðríður Vilmundardóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 25. júlí 1931 á Eyjarhólum, d. 14. september 2006 á Landspítalanum. Maður hennar Guðmundur Guðmundsson, látinn.
4. Bernharð Guðjón Vilmundarson hjólbarðaviðgerðarmaður í Hafnarfirði, f. 23. september 1936 á Eyjarhólum, d. 21. nóvember 1978. Fyrrum kona hans Helga Haraldsdóttir. Kona hans Guðný Baldursdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skagfirskar æviskrár- Tímabilið 1910-1950. Umsjón og ritstjórn Hjalti Pálsson frá Hofi. Sögufélag Skagfirðinga, Sauðárkróki 2009.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.