Ingibjörg Magnúsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Magnúsdóttir á Vilborgarstöðum fæddist 1766 í Miðey í A-Landeyjum og lést 1. júlí 1840 á Vilborgarstöðum.
Foreldrar hennar voru Magnús Jónsson bóndi í Miðey. Ætt hans er ókunn. Móðir Ingibjargar er ókunn.

Ingibjörg var húsfreyja á Kirkjulandi í A-Landeyjum 1794-1797, síðan vinnukona á Önundarstöðum þar, en að síðustu hjá Gísla syni sínum og Helgu konu hans á Vilborgarstöðum.
Hún lést 1840.

Maður Ingibjargar, (6. júlí 1794), var Ásmundur Jónsson bóndi á Kirkjulandi og vinnumaður á Brúnum, f. 1766, d. 16. júní 1859.
Börn þeirra hér:
1. Halldór Ásmundsson bóndi í Stóra-Gerði, f. 24. júlí 1793, d. 4. maí 1837.
2. Magnús Ásmundsson vinnumaður í Kastala, f. 1. maí 1795, d. 15. september 1856.
3. Jón Ásmundsson vinnumaður á Gjábakka, síðan bóndi í Búð í Þykkvabæ, f. 1. desember 1799, d. 3. ágúst 1826.
4. Gísli Ásmundsson bóndi á Vilborgarstöðum, skírður 26. mars 1801, d. 23. maí 1844.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III –Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.