Ingibjörg Hjörleifsdóttir (Breiðabliki)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ingibjörg Hjörleifsdóttir.

Ingibjörg Hjörleifsdóttir frá Raufarfelli u. Eyjafjöllum, húsfreyja fæddist þar 5. ágúst 1924 og lést 8. febrúar 2005 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Foreldrar hennar voru Hjörleifur Guðjónsson bústjóri, síðar verkamaður í Eyjum og Keflavík, f. 20. maí 1893 í Selkoti u. Eyjafjöllum, d. 24. janúar 1973, og Soffía Guðfinna Runólfsdóttir húsfreyja, f. 21. apríl 1890 í Hörglandskoti í V-Skaft., d. 4. október 1982.

Börn Soffíu og Hjörleifs:
1. Gróa Hjörleifsdóttir húsfreyja, síðar í Keflavík, f. 31. júlí 1915, d. 17. desember 1993, gift Magnúsi Ísleifssyni.
2. Guðbjörg Hjörleifsdóttir, f. 10. apríl 1918, d. 3. nóvember 1921.
3. Guðjón Kristinn Hjörleifsson múrari, síðar í Keflavík, f. 29. júní 1919, d. 9. nóvember 1965. Kona hans Sigríður Reykdal Þorvaldsdóttir.
4. Magnús Hjörleifsson, f. 13. júní 1921, d. 3. september 1962. Kona hans Guðbjörg Einarsdóttir.
5. Gísli Ágúst Hjörleifsson járnsmiður, f. 13. febrúar 1923, d. 17. september 1967. Kona hans Ása Soffía Friðriksdóttir.
6. Ingibjörg Hjörleifsdóttir húsfreyja, síðast búsett í Njarðvíkum, f. 5. ágúst 1924, d. 8. febrúar 2005. Maður hennar Aðalsteinn Guðmundsson.
7. Ingi Guðmann Hjörleifsson múrari og húsasmiður, síðar í Keflavík , f. 11. september 1927 á Breiðabliki, d. 15. febrúar 2011. Kona hans Kristrún Jóhanna Pétursdóttir.
8. Andvana stúlka, f. 7. apríl 1929 á Minna-Núpi.
Barn Soffíu:
9. Rósa Runólfsdóttir húsfreyja í Hólatungu, f. 9. nóvember 1909, d. 25. apríl 1948, kona Stefáns Guðjónssonar.

Ingibjörg var með foreldrum sínum, fluttist með þeim til Eyja 1926, var með þeim á Búðarfelli, Breiðabliki 1930, í Héðinshöfða 1934 og síðar Brattlandi til 1945, en fluttist þá með þeim til Keflavíkur.
Þau Aðalsteinn giftu sig 1949, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í fyrstu í Keflavík, en síðan í Njarðvík, fyrr á Borgarvegi, en síðar á Holtsgötu þar.

I. Maður Ingibjargar, (16. apríl 1949), var Aðalsteinn Guðmundsson frá Bjargi í Sandgerði, vélstjóri, f. 24. júní 1928 í Reykjavík, d. 6. mars 2019 á Hlévangi í Reykjanesbæ. Foreldrar hans voru Guðmundur Magnús Guðmundsson sjómaður, f. 16. mars 1901, d. 29. mars 1989, og kona hans Ingibjörg Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 18. maí 1890, d. 15. apríl 1974.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Ingi Aðalsteinsson pípulagningamaður, f. 13. desember 1948, ókvæntur.
2. Rósant Guðbjörn Aðalsteinsson viðurkenndur bókari, rekur bókhaldsstofu, f. 29. janúar 1952. Barnsmóðir hans Svanborg Lilja Eyþórsdóttir. Kona hans Guðrún Högnadóttir.
3. Soffía Aðalsteinsdóttir húsfreyja, vinnur við dagvistun eldri borgara, f. 14. mars 1955. Maður hennar Erlendur Guðnason.
4. Ingveldur Magga Aðalsteinsdóttir húsfreyja, móttökuritari, f. 25. september 1964. Maður hennar Sigurður Garðarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.