Indlaug Björnsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðbjörg Björnsdóttir situr og heldur á Indu (Indlaugu). Við hlið hennar er Guðjón Björnsson.
Standandi frá vinstri: Hallbera Illugadóttir fyrri kona Björns Eiríks Jónssonar, Jóna Ingibjörg dóttir Guðbjargar og líklega Guðbjörg Árný Björnsdóttir dóttir Hallberu.

Indlaug Gróa Valgerður Björnsdóttir frá Norður-Gerði, húsfreyja, verkakona, sjúkrahússstarfsmaður fæddist 23. febrúar 1910 og lést 9. nóvember 1990.
Foreldrar hennar voru Björn Eiríkur Jónsson sjómaður, bóndi, útgerðarmaður, formaður, f. 16. desember 1884 í Stóra-Gerði, d. 30. apríl 1979, og fyrri kona hans Hallbera Valgerður Illugadóttir húsfreyja, f. 28. október 1888 á Grjóti í Garðasókn, Gull., d. 14. nóvember 1934.

Börn Hallberu og Björns:
1. Guðbjörg Árný Björnsdóttir, f. 31. desember 1907, d. 18. maí 1921.
2. Indlaug Gróa Valgerður Björnsdóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1910, d. 9. nóvember 1990.
3. Jón Björnsson sjómaður, síðast í Hafnarfirði, f. 18. janúar 1913, d. 6. desember 1999.
4. Guðbjörn Árni Björnsson matsveinn á Selfossi, síðast á Seltjarnarnesi, f. 7. október 1923, d. 5. maí 1982.
Börn Brynheiðar og síðari konu Björns og hans:
5. Hallberg Björnsson, f. 17. maí 1940, d. 25. september 1971.
6. Arnfríð Heiðar Björnsson, f. 7. júlí 1947, d. 28. apríl 2008.
7. Guðlaugur Grétar Björnsson, f. 1. júní 1950, d. 7. desember 2020.

Indlaug var með foreldrum sínum í æsku, var um skeið í Reykjavík kringum 1930.
Hún vann við fiskverkun, sauma, ræstingar. Þá vann hún lengi á Sjúkrahúsinu við almenn störf og síðan við ummönnun sjúkra.
Þau Jón bjuggu í Gerði 1931 við fæðingu fyrsta barns síns, sem lést tveggja daga gamalt. Þau bjuggu á Lágafelli 1933 við fæðingu Svans, voru komin að Nýjalandi við Heimagötu 26 1935 og bjuggu þar meðan bæði héldu lífi.
Jón lést 1943.
Indlaug bjó í Nýjalandi um skeið með börnum sínum. Hún bjó með þeim á Þingvöllum 1949, síðan á Sólvangi við Kirkjuveg 29. Hún bjó hjá Svani og Ingibjörgu á Sóleyjargötu 7 1972, á Faxastíg 13 (Tommahúsi) eftir Gos og bjó þar 1979, á Sóleyjargötu 1 hjá Svani og Ingibjörgu 1986.
Indlaug dvaldi að síðustu í Hraunbúðum. Hún lést 1990.

I. Sambýlismaður Indlaugar var Jón Ólafur Gestsson frá Pálshúsi á Stokkseyri, verkamaður, sjómaður, f. 7. október 1909, d. 10. ágúst 1943.
Börn þeirra:
1. Stúlka, f. 20. maí 1931, d. 22. maí 1931.
2. Svanur Jónsson vélvirki, vélstjóri, f. 19. janúar 1933 á Lágafelli við Vestmannabraut 10, d. 13. desember 2023.
3. Hallbera Valgerður Jónsdóttir, f. 4. október 1941 á Nýjalandi við Heimagötu 26.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.