Hjörleifur Guðjónsson (Breiðabliki)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hjörleifur Guðjónsson bústjóri á Raufarfelli u. Eyjafjöllum, síðar verkamaður í Eyjum og Keflavík, fæddist 21. maí 1893 og lést 24. janúar 1973.
Foreldrar hans voru Guðjón Tómasson bóndi á Raufarfelli og í Selkoti, f. 19. ágúst 1869, d. 5. desember 1915 og kona hans Ingveldur Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. desember 1872, d. 1. apríl 1964.

Bróðir Hjörleifs var Stefán Guðjónsson í Hólatungu, f. 8. maí 1904, d. 4. nóvember 1987. Tómas afi þeirra var bróðir Gísla Stefánssonar í Hlíðarhúsi.

Hjörleifur var með foreldrum sínum í æsku. Hann kvæntist Soffíu Guðfinnu 1915 og var bústjóri hjá ekkjunni móður sinni á Raufarfelli og bóndi þar. Þar var hann með Soffíu Guðfinnu og þrem börnum þeirra 1920.
Þau Soffía Guðfinna fluttust til Eyja 1926 með börn sín önnur en Magnús og Gísla Ágúst, sem voru tökubörn á Raufarfelli í lok árs 1926. Þau bjuggu fyrst á Búðarfelli hjá Runólfi bróður hennar, 1930 bjuggu þau á Breiðabliki, í Héðinshöfða 1934 og síðar á Brattlandi, en fluttust til Keflavíkur 1945.

I. Kona Hjörleifs, (4. júlí 1915), var Soffía Guðfinna Runólfsdóttir húsfreyja, f. 21. apríl 1890 í Hörglandskoti á Síðu, d. 4. október 1982.
Börn þeirra voru
1. Gróa Hjörleifsdóttir húsfreyja, síðar í Keflavík, f. 31. júlí 1915, d. 17. desember 1993, gift Magnúsi Ísleifssyni.
2. Guðbjörg Hjörleifsdóttir, f. 10. apríl 1918, d. 3. nóvember 1921.
3. Guðjón Kristinn Hjörleifsson múrari, síðar í Keflavík, f. 29. júní 1919, d. 9. nóvember 1965.
4. Magnús Hjörleifsson, f. 13. júní 1921, d. 3. september 1962. Kona hans Guðbjörg Einarsdóttir.
5. Gísli Ágúst Hjörleifsson járnsmiður, f. 13. febrúar 1923, d. 17. september 1967. Kona hans Ása Soffía Friðriksdóttir.
6. Ingibjörg Hjörleifsdóttir húsfreyja, síðast búsett í Njarðvíkum, f. 5. ágúst 1924, d. 8. febrúar 2005.
7. Ingi Guðmann Hjörleifsson múrari og húsasmiður, síðar í Keflavík , f. 11. september 1927 á Breiðabliki, d. 15. febrúar 2011.
8. Andvana stúlka, f. 7. apríl 1929 á Minna-Núpi. Barn Soffíu:
9. Rósa Runólfsdóttir húsfreyja í Hólatungu, f. 9. nóvember 1909, d. 25. apríl 1948, kona Stefáns Guðjónssonar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.