Hjörleifur Sveinsson (eldri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Hjörleifur Sveinsson


Hjörleifur í október 1979.

Hjörleifur Sveinsson fæddist 23. janúar 1901 og lést 29. október 1997. Eiginkona hans hét Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir og áttu þau fjögur börn. Þau voru Guðbjörg, Friðrik Ágúst Hjörleifsson, Anna og Sveinn.

Frekari umfjöllun

Hjörleifur Sveinsson í Skálholti, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, netamaður fæddist 23. janúar 1901 í Selkoti u. Eyjafjöllum og lést 29. september 1997 í Hraunbúðum.

Faðir Hjörleifs var Sveinn bóndi í Selkoti, f. 7. október 1874, d. 15. janúar 1920, Jónsson bónda á Lambafelli u. Eyjafjöllum 1870, f. 3. maí 1837 í Heiðarseli á Síðu, d. 31. júlí 1908 á Lambafelli, Jónssonar bónda í Heiðarseli á Síðu, f. 13. janúar 1802 í Arnardrangi í Landbroti, d. 16. október 1863 í Heiðarseli, Jónssonar, og konu Jóns í Heiðarseli, Ólafar húsfreyju, f. 13. mars 1802 í Heiðarseli á Síðu, d. 22. febrúar 1865 þar, Sveinsdóttur.
Móðir Sveins í Selkoti og kona Jóns á Lambafelli var Guðný húsfreyja, f. 25. nóvember 1835 í Lambafellssókn, d. 29. maí 1914, Vigfúsdóttir bónda í Efri-Mörk á Síðu, f. 18. janúar 1807 í Hlíð u. Eyjafjöllum, d. 30. maí 1866 í Efri-Mörk, Jónssonar, og konu Vigfúsar, Sigríðar húsfreyju, f. 28. apríl 1807 á Lambafelli, d. 18. apríl 1878 í Efri-Mörk, Árnadóttur.

Móðir Hjörleifs Sveinssonar og kona Sveins í Selkoti var Anna Valgerður húsfreyja, f. 11. ágúst 1871, d. 5. maí 1963, Tómasdóttir bónda á Raufarfelli og Selkoti, f. 25. ágúst 1834, d. 3. júní 1914, Stefánssonar bónda og stúdent á Rauðafelli, í Selkoti, í Miðbæli, í Varmahlíð og (1814) aftur í Selkoti undir Eyjafjöllum, f. 3. apríl 1772, d. 12. desember 1854, Ólafssonar bónda, silfursmiðs og hreppstjóra í Selkoti 1801, f. 1742, d. 5. október 1814, og þriðju konu Stefáns Ólafssonar, Önnu húsfreyju, f. 12. apríl 1803, d. 11. júlí 1879, Jónsdóttur.
Móðir Önnu Valgerðar Tómasdóttur og kona Tómasar Stefánssonar var Gróa húsfreyja á Raufarfelli og í Selkoti, f. 19. maí 1830, d. 8. janúar 1905, Arnoddsdóttir bónda í Hrútafellskoti og víðar, f. 18. september 1796, d. 29. mars 1883, Brandssonar, og fyrri konu Arnodds, Guðrúnar Bjarnadóttur húsfreyju, f. 8. nóvember 1786, d. 31. desember 1840.

Bróðir Tómasar Stefánssonar bónda á Raufarfelli, afa Hjörleifs Sveinssonar, var Gísli Stefánsson kaupmaður í Hlíðarhúsi.

Börn Önnu og Sveins í Selkoti:
1. Guðrún Sveinsdóttir húsfreyja í Skarðshlíð, f. 25. ágúst 1897, d. 25. maí 1988. Maður hennar Jón Hjörleifsson.
2. Guðjón Sveinsson sjómaður, útgerðarmaður, iðnverkamaður, f. 30. ágúst 1898, d. 15. maí 1968. Kona hans Marta Eyjólfsdóttir.
3. Hjörleifur Sveinsson í Skálholti, sjómaður, útgerðarmaður, netamaður, f. 23. janúar 1901, d. 29. október 1997. Kona hans Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir.
4. Tómas Sveinsson sjómaður, útgerðarmaður, verkstjóri, f. 14. ágúst 1903, d. 24. apríl 1988. Kona hans Líney Guðmundsdóttir.
5. Gróa Sveinsdóttir húsfreyja í Selkoti, f. 18. júlí 1906, d. 17. desember 1994. Maður hennar Gissur Gissurarson.
6. Sigfús Sveinsson sjómaður, verkamaður, f. 24. apríl 1907, d. 18. nóvember 1993. Kona hans Guðrún Gissurardóttir.

Nokkrir afkomendur Jóns Jónssonar á Lambafelli og Guðnýjar Vigfúsdóttur í Eyjum:
1. Vigfús Jónsson bóndi á Raufarfelli, f. 30. nóvember 1861, d. 10. desember 1894, faðir
a) Ólafs Vigfússonar skipstjóra í Gíslholti, f. 21. ágúst 1891, d. 15. maí 1974. Kona hans Kristín Jónsdóttir.
2. Ólafur Jónsson bóndi í Skarðshlíð, f. 23. janúar 1865, d. 14. júní 1927, kvæntur Önnu Skæringsdóttur. Þau voru foreldrar
a) Guðlaugar Ólafsdóttur húsfreyju í Fagurhól, f. 3. júní 1889, d. 27. október 1970. Maður hennar var Markús Sæmundsson.
b) Skærings Ólafssonar bónda í Skarðshlíð, síðar í Eyjum, f. 7. desember 1890, d. 28. júlí 1984.
c) Jóns Ólafssonar útgerðarmanns á Hólmi, f. 7. mars 1892, d. 21. desember 1946, kvæntur Stefaníu Einarsdóttur og Guðrúnu Ingibjörgu Sigurjónsdóttur.
3. Jón Jónsson bóndi á Seljavöllum, f. 11. september 1866, d. 23. maí 1936. Konur hans voru Ragnhildur Sigurðardóttir og Sigríður Magnúsdóttir.
Börn hans í Eyjum voru:
a) Guðjón Jónsson vélsmíðameistari í Magna, f. 22. febrúar 1891. Móðir Ragnhildur.
b) Sigurður Jónsson vélsmiður, síðar í Reykjavík, f. 7. desember 1897, d. 16. apríl 1960. Móðir hans Ragnhildur. Kona hans Stefanía Jóhannsdóttir.
c) Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja á Faxastíg 8a, f. 8. apríl 1905 á Seljavöllum, d. 14. mars 1987. Móðir hennar Sigríður. Hún var kona Kjartans Jónssonar sjómanns, vélsmiðs.
d) Magnús Jónsson vélstjóri á Hásteinsvegi 58, f. 17. ágúst 1909, d. 12. desember 1988, sonur Sigríðar. Kona hans var Lilja Sigurðardóttir.
e) Vigfús Jónsson vélsmíðameistari, f. 11. apríl 1913, d. 22. desember 1970, sonur Sigríðar. Kona hans Salóme Gísladóttir.
f) Ásta Gréta Jónsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1916, d. 6. ágúst 1945. Móðir hennar Sigríður. Maður hennar Samúel Ingvarsson.
Stjúpsonur (3.) Jóns á Seljavöllum og sonur Sigríðar Magnúsdóttur var
g) Jón Ólafur Eymundsson Jónsson rennismiður, útgerðarmaður, f. 12. nóvember 1901, d. 9. september 1985.
4. Sveinn Jónsson, f. 7. október 1874, d. 15. janúar 1920, faðir Selkotssystkina, Guðjóns, Hjörleifs, Tómasar og Sigfúsar Sveinssona og Gróu Sveinsdóttur.


Hjörleifur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk skipstjóra- og vélstjóraprófi. Hjörleifur var sjómaður í Eyjum og var jafnframt í útgerð. Vann hann með Jóni á Hólmi og bjó þar í fyrstu. Hann hætti sjómennsku 1940 og starfaði í Vélsmiðjunni Magna og frá 1950 við vélaviðhald hjá Fiskiðjunni. Þá var hann netamaður við útgerð Sveins sonar síns.
Þau Þóra giftu sig 1926, eignuðust fimm börn, en misstu eitt þeirra sólarhringsgamalt.
Þau bjuggu í Skálholti við Landagötu 22 meðan bæði lifðu.
Hjörleifur fluttist til Ágústs sonar síns og Önnu í Reykjavík við Gosið og bjó hjá þeim í nítján ár. Þá fluttist hann að Hraunbúðum og bjó þar til hins síðasta.
Þóra Arnheiður lést 1970. Hjörleifur lést 1997.

ctr
Hjörleifur, Þóra og afkomendur. Smelltu á myndina til að fá ítarlega lýsingu á fólkinu.

I. Kona Hjörleifs, (16. október 1926), var Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir húsfreyja, f. 18. október 1903, d. 6. júlí 1970.
Börn þeirra:
1. Sveinn Hjörleifsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 1. ágúst 1927, d. 4. janúar 2004. Kona hans Aðalheiður Maggý Pétursdóttir.
2. Anna Hjörleifsdóttir húsfreyja, póstvarðstjóri í Reykjavík, f. 31. mars 1929, d. 21. febrúar 2018. Maður hennar Sigmundur Páll Lárusson.
3. Friðrik Ágúst Hjörleifsson sjómaður, útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 16. nóvember 1930 í Skálholti, d. 7. október 2014. Kona hans Anna Jóhanna Oddgeirs.
4. Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 20. júlí 1932 í Skálholti. Maður hennar Egill Kristjánsson.
5. Drengur, f. 7. mars 1940, d. sama dag.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


Myndir