Henríetta Ástríður Helgadóttir (Heiðarbóli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Henríetta Ástríður Helgadóttir frá Tóptahúsi í Reykjavík, húsfreyja á Heiðarbóli fæddist 5. október 1889 í Reykjavík og lést 27. maí 1956. Nöfn hennar í Eyjum voru einnig Ástríður og Ásta.
Foreldrar hennar voru Helgi Hinriksson verkamaður, f. 18. júní 1861 á Álftanesi, d. 27. apríl 1913, og Guðrún Jónsdóttir bústýra, f. 9. apríl 1855 í Steinasókn u. Eyjafjöllum, d. 2. apríl 1908.

Börn Helga og Guðrúnar í Eyjum:
1. Henríetta Ástríður Helgadóttir húsfreyja á Heiðarbóli, f. 15. október 1889, d. 27. maí 1956.
2. Helgi Ágúst Helgason verslunarmaður, vélstjóri, fiskimatsmaður, f. 25. ágúst 1893, d. 26. mars 1968.

Henríetta var með foreldrum sínum í Tóptahúsi í Reykjavík 1890 og í Miðhúsum þar 1901.
Hún var húsfreyja, ógift, á Hverfisgötu 56 í Reykjavík 1910, þar búandi með Guðmundi Jónssyni sjómanni.
Henríetta fluttist til Eyja 1913, bjó með Þórði Þorsteinssyni sjómanni á Hólmi 1920, í Ásum við Skólaveg 1924, voru komin á Heiðarbóli, Brekastíg 8 1930. Þau voru á Heiðarbóli 1940 með fósturbarnið Guðrúnu Helgu Helgadóttur, sem var bróðurdóttir Henríettu. Þau bjuggu enn á Heiðarbóli 1945 og hjá þeim bjó Helgi bróðir Henríettu, en Guðrún Helga var farin.
Þau Þórður bjuggu síðan á Heiðarbóli meðan bæði lifðu. Henríetta lést (undir nafninu Henríetta Ásta í Garði.is) 1956 og Þórður lést 1959.

I. Sambýlismaður Henríettu var Guðmundur Jónsson sjómaður í Reykjavík 1910, f. 1. september 1888 á Grund á Akranesi, d. 18. júlí 1955.

II. Sambýlismaður hennar var Þórður Þorsteinsson sjómaður frá Eiði í Garði, Gerðahreppi, f. 1. júní 1894, d. 25. september 1959. Foreldrar hans voru Þorsteinn Finnsson bóndi og sjómaður, f. 1861, drukknaði 7. apríl 1901, og kona hans Gróa Jónsdóttir húsfreyja, f. 20. júní 1862, d. 25. febrúar 1923.
Fósturbarn þeirra:
1. Guðrún Helga Helgadóttir húsfreyja, f. 14. apríl 1924, d. 29. desember 1997. Hún var bróðurdóttir Henríettu.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.