Helgi Helgason fiskimatsmaður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Helgi Ágúst Helgason verslunarmaður, vélstjóri, fiskimatsmaður fæddist 25. ágúst 1893 í Reykjavík og lést 26. mars 1968.
Foreldrar hans voru Helgi Hinriksson verkamaður, f. 18. júní 1861 á Álftanesi, d. 27. apríl 1913, og Guðrún Jónsdóttir bústýra, f. 9. apríl 1855, d. 2. apríl 1908.

Börn Helga og Guðrúnar í Eyjum:
1. Henríetta Ástríður Helgadóttir húsfreyja á Heiðarbóli, f. 15. október 1889, d. 27. maí 1956.
2. Helgi Helgason verslunarmaður, vélstjóri, fiskimatsmaður, f. 25. ágúst 1893, d. 26. mars 1968.

Helgi var með foreldrum sínum í Miðhúsum í Reykjavík í æsku. Móðir hans lést, er hann var á fimmtánda árinu.
Hann var með föður sínum og Gróu Jörginsdóttur bústýru hans á Vitastíg 9 í Reykjavík1910.
Helgi fluttist til Eyja 1913, var lausamaður í Garðinum við fæðingu Jóhönnu 1915, en Þorfinna var leigjandi í Fagurhól.
Þau Helgi Helgason bjuggu saman á Hjalla með börnin Jóhönnu og Ólaf 1916, í Laugardal 1917. Hann var vélstjóri, fiskimatsmaður á Hjalteyri 1920 með Þorfinnu húsfreyju, barni þeirra Jóhönnu Kristínu og Ólafi barni húsfreyju. Þar voru þau 1927, hjón á Nýjalandi við Heimagötu 26 1930 með börnin.
Þau Þorfinna skildu og hún var bústýra Ólafs Guðmundssonar á Bakka á Flötum 12 1934. Þar voru börn hennar Ólafur og Jón Ástvaldur og Fífa Guðmunda dóttir Ólafs. Guðrún Helga var fósturbarn á Heiðarbóli við Brekastíg 8 hjá Henríettu Ástríði Helgadóttur föðursystur sinni, en Jóhanna Kristín var gift, kona Sigurðar Óla Sigurjónssonar.
Helgi var verslunarmaður, bjó hjá Ástríði systur sinni á Heiðarbóli 1940. Þar var Guðrún Helga dóttir hans í fóstri. Hann bjó þar enn 1945, en bjó einn í Hólmgarði 1949.
Helgi Ágúst fluttist til Reykjavíkur og dvaldi að síðustu á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Hann lést 1968.

I. Kona Helga, (4. júní 1929, skildu), var Þórfinna Finnsdóttir húsfreyja, f. 28. maí 1891 í Stóru-Borg u. Eyjafjöllum, d. 15. nóvember 1976.
Börn Helga og Þórfinnu voru:
1. Jóhanna Kristín Helgadóttir húsfreyja á Þingeyri, f. 9. október 1915, d. 7. október 2000.
2. Guðrún Helga Helgadóttir húsfreyja, f. 14. apríl 1924 á Hjalteyri, d. 29. desember 1997.
3. Ástvaldur Helgason sundlaugarvörður, f. 7. nóvember 1925, d. 20. apríl 1996.
Barn Þorfinnu og fósturbarn Helga var
4. Ólafur Gränz húsgagnasmíðameistari, f. 4. mars 1912 í Dal, d. 14. ágúst 1960.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.