Helga Káradóttir (Presthúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Helga Káradóttir og Þórður Ársælsson.

Helga Káradóttir frá Presthúsum, húsfreyja á Önundarstöðum í A-Landeyjum og á Borg í Hraunshverfi á Eyrarbakka fæddist 30. maí 1904 í Vesturholtum u. V-Eyjafjöllum og lést 13. júní 1999.
Foreldrar hennar voru Kári Sigurðsson bóndi, bátsformaður, útvegsbóndi í Hvíld og Presthúsum, f. 12. júlí 1880 í Selshjáleigu í V-Landeyjum, d. 10. ágúst 1925, og kona hans Þórunn Pálsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1879 í Vesturholtum u. Eyjafjöllum, d. 25. mars 1965 í Reykjavík.

Börn Þórunnar og Kára voru:

  1. Ingileif, f. 10. júní 1903, d. 16. júní 1903;
  2. Helga húsfreyja á Önundarstöðum í A-Landeyjum, f. 30. maí 1904, d. 13. júní 1999;
  3. Óskar byggingafulltrúi í Eyjum, f. 9. ágúst 1905, d. 2. maí 1970;
  4. Ingileif húsfreyja í Reykjavík, f. 21. október 1906, d. 29. ágúst 2003;
  5. Sigurbjörn kaupmaður í Reykjavík, f. 31. maí 1908, d. 21. apríl 1997;
  6. Þórður sjómaður í Reykjavík, f. 10. ágúst 1909, d. 20. febrúar 1933. Hann ólst upp hjá föðursystur sinni Önnu Sigurðardóttur og Jóni Jónssyni að Syðri-Úlfsstöðum í A-Landeyjum. Hann drukknaði, er línuveiðarinn Papey fórst eftir árekstur á Sundunum hjá Reykjavík.
  7. Guðni bakari og lengst skrifstofumaður og verzlunarmaður í Reykjavík, f. 10. september 1910, d. 18. ágúst 2004;
  8. Nanna saumakona í Reykjavík, f. 1. marz 1912, d. 14. júní 1978;
  9. Sölmundur, f. 23. apríl 1913, d. 7. apríl 1914;
  10. Laufey, f. 10. marz 1914, d. 14. ágúst 1917;
  11. Arnkell, f. 4. apríl 1916, d. 12. marz 1917;
  12. Rakel húsfreyja í Reykjavík, f. 4. september 1917, d. 10. ágúst 1980;
  13. Jón Trausti aðalbókari í Reykjavík, f. 9. febrúar 1920, d. 24. nóvember 2011;
  14. Kári, f. 4. júlí 1921, d. 27. febrúar 1924;
  15. Guðríður Svala öryrki, f. 16. júlí 1922, d. 13. desember 2005;
  16. Kári Þórir múrari í Reykjavík, f. 9. maí 1924, d. 10. maí 2009;
  17. Karl, f. 24. júlí 1925, d. 16. febrúar 1935.

Helga var með foreldrum sínum í æsku, með þeim í Vesturholtum, á Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu (nú Bólstaður) í A-Landeyjum 1910-1913, er þau fluttust til Eyja, bjuggu í fyrstu í Hvíld, en síðan í Presthúsum.

Á unga aldri var Helga í vistum í Eyjum, á Bakka og Önundarstöðum í A-Landeyjum og gekk í húsmæðraskóla í Reykjavík.
Þau Þórður giftu sig 1936, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Önundarstöðum 1936-1946, en fluttust þá að Borg í Hraunshverfi á Eyrarbakka. Þórður lést 1975. Helga bjó áfram á Borg 1975-1976, en síðan með Karli syni sínum á Háeyrarvöllum á Eyrarbakka.
Helga lést 1999.

Maður Helgu, (23. apríl 1936), var Þórður Ársælsson bóndi, f. 22. febrúar 1905 á Önundarstöðum, d. 29. mars 1975. Foreldrar hans voru Ársæll Ísleifsson bóndi á Önundarstöðum, f. 1. janúar 1865, d. 12. apríl 1938, og kona hans Anna Þórðardóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1870, d. 13. mars 1958.
Börn þeirra:
1. Karl Þórðarson verkamaður, hagyrðingur á Eyrarbakka, f. 25. febrúar 1937, d. 22. janúar 2005, ókv.
2. Ársæll Þórðarson húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 29. janúar 1943. Kona hans er Eygló Karlsdóttir.
3. Anna Matthildur Þórðardóttir húsfreyja, talsímavörður í Hafnarfirði, f. 19. desember 1946. Maður hennar er Ágúst Stefánsson.
Fósturbarn hjónanna og systursonur Helgu er
4. Sigurður Þorkelsson vélvirki, f. 19. september 1943 í Presthúsum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.