Halldóra Úlfarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Halldóra Úlfarsdóttir.

Halldóra Hansína Úlfarsdóttir frá Vattarnesi við Reyðarfjörð, húsfreyja í Eyjum fæddist 2. október 1918 og lést 20. ágúst 2000.
Foreldrar hennar voru Úlfar Kjartansson frá Dagsbrún á Vattarnesi, útgerðarmaður, f. 26. nóvember 1895, d. 22. mars 1985, og kona hans María Ingibjörg Halldórsdóttir húsfreyja, f. 16. september 1897, d. 29. september 1939.

Halldóra var með foreldrum sínum í æsku, á Vattarnesi 1920 og 1930.
Hún fluttist til Eyja, varð vinnukona hjá Guðrúnu Stefánsdóttur og Helga Benediktssyni.
Þau Njáll giftu sig 1939, eignuðust sex börn. Þau bjuggu í fyrstu á Sólbakka, en byggðu sér að Hásteinsvegi 29 1942 og bjuggu þar, uns þau fluttust að Sólhlíð 19e.
Halldóra var formaður Kvenfélags Landakirkju, starfaði með Leikfélaginu og Kvenfélaginu Líkn.
Njáll lést 1999 og Halldóra 2000.

I. Maður Halldóru, (8. apríl 1939), var Njáll Andersen frá Sólbakka, vélvirkjameistari, verkstjóri, f. 24. júní 1914, d. 27. október 1999.
Börn þeirra:
1. María Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kaupmaður, skólaliði, f. 11. febrúar 1940 á Sólbakka. Maður hennar var Kolbeinn Ólafsson.
2. Úlfar Njálsson Andersen vélvirki, f. 10.janúar 1943 á Hásteinsvegi 29. Fyrri kona hans er Guðfinna Ásta Kristinsdóttir. Síðari kona Úlfars er Halla Hafsteinsdóttir.
3. Harpa Njálsdóttir Andersen húsfreyja, skólaliði, f. 10. ágúst 1948 á Hásteinsvegi 29. Fyrri maður hennar var Ólafur Óskarsson, látinn. Síðari maður Hörpu er Atli Sigurðsson.
4. Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kennari, f. 27. apríl 1953 að Hásteinsvegi 29. Maður hennar er Ragnar Óskarsson
5. Pétur Njálsson Andersen vélvirki, f. 1. janúar 1955 að Hásteinsvegi 29. Kona hans er Andrea Berghildur Gunnarsdóttir.
6. Theodór Friðrik Njálsson Andersen viðskiptafræðingur, bankastarfsmaður í Finnlandi, f. 3. mars 1960 að Hásteinsvegi 29. Kona hans er Siv Schalin.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.