Gunnhildur Oddsdóttir (London)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnhildur Oddsdóttir húsfreyja í London fæddist 9. október 1824, var á lífi 1882.
Faðir Gunnhildar var Oddur bóndi í Vestra-Fróðholti og Fróðholtshól á Rangárvöllum og Álfhólahjáleigu í Sigluvíkursókn, f. 9. apríl 1790 í Eystra-Fróðholti, d. 28. apríl 1876 að Hrauni í Ölfusi, Gunnarsson bónda í Eystra-Fróðholti, f. 1742, d. 6. nóvember 1829, Árnasonar bónda á Háfi í Holtum, f. 1692, Gunnarssonar.
Móðir Odds í Vestra-Fróðholti og fyrri kona Gunnars Árnasonar var Steinvör húsfreyja, f. 1746, d. 4. janúar 1804, Eiríksdóttir.

Móðir Gunnhildar Oddsdóttur í London var Gunnhildur húsfreyja, f. 16. ágúst 1788, d. 1. ágúst 1843, Árnadóttir bónda á Selalæk á Rangárvöllum, f. 1749 á Keldum, d. 3. apríl 1831, Ormssonar prests á Reyðarvatni, f. 1707, d. í mars 1776, Snorrasonar og fyrri konu séra Orms, Guðlaugar húsfreyju, f. 1720, d. 1751, Árnadóttur.
Móðir Gunnhildar Árnadóttur og kona Árna á Selalæk var Þuríður húsfreyja, f. 1749, d. 21. ágúst 1826, Loftsdóttir prests á Krossi í Landeyjum, f. 1703, d. 1752, Rafnkelssonar, og konu sr. Lofts, Guðbjargar húsfreyju, f. 1712, d. í mars 1765, Pálsdóttur.

Gunnhildur var húsfreyja í Larshús í Eyjum 1855, í London (nýtt nafn á Larshúsi) 1860. Hún var húskona á Hólnum 1866, ekkja búandi í Godthaab með Amalie dóttur sinni hjá Jes Nicolai Thomsen faktor 1867, sjálfrar sín í Pétursborg 1868, húskona með Amalie og Brynjólf son sinn í Stakkagerði 1869 og 1870, í Hólshúsi 1871, 1873, er hún missti Brynjólf son sinn, og enn 1875, húskona og ekkja í Godthaab 1877-1879, í Gvendarhúsi, 1880, í Godthaab 1881. Hún fór frá Eyjum til Kaupmannahafnar 1882 og mun hafa flust til Vesturheims.

I. Maður Gunnhildar var Lars Tranberg tómthúsmaður, formaður og hafnsögumaður, f. um 1805 í Gudhjem á Borgundarhólmi, d. 30. september 1860. Gunnhildur var síðari kona hans.
Börn Gunnhildar og Lars Tranbergs 1860:
1. Alexander Tranberg, f. 10. desember 1850, d. 18. desember1850, orsakar ekki getið.
2. Amalie Eleonora Larsdóttir, f. 25. júlí 1852. Hún fór til Kaupmannahafnar 1872.
3. Kristjana Margrét Larsdóttir, f. 9. október 1854, d. 11. febrúar 1866.
4. Maria Maren Kristensa Larsdóttir, f. 7. júní 1857, d. 1934. Hún var fósturdóttir Jórunnar Jónsdóttur Austmann. Hún fót til Chicago.
5. Jakob Sandersen Larsson Tranberg, f. 7. ágúst 1860, d. 21. maí 1945.

II. Barnsfaðir Gunnhildar var Brynjólfur Jónsson skipstjóri.
Barnið var
6. Brynjólfur Kristján Magnús Brynjólfsson, f. 30. ágúst 1868 í Pétursborg, d. 8. september 1873 í Stakkagerði úr „andarteppu“.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.