Gunnar Vilhelmsson (Staðarfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gunnar og Bjarnveig.

Gunnar Vilhelmsson frá Staðarfelli, múrari í Sandgerði fæddist 8. júlí 1939 á Staðarfelli.
Foreldrar hans voru Vilhelm Ragnar Ingimundarson prentari, sölustjóri, kaupmaður í Reykjavík, f. 10. janúar 1922, d. 8. janúar 2012 og barnsmóðir hans Sigríður Einarsdóttir, síðar húsfreyja í Vestra-Stakkagerði, f. 5. febrúar 1822, d. 9. júní 1989.

I. Barn Sigríðar og Vilhelms Ragnars Ingimundarsonar:
1. Gunnar Vilhelmsson múrari, f. 8. júlí 1939 á Staðarfelli. Kona hans Bjarnveig Gunnarsdóttir.
II. Börn Sigríðar og Hans Þorvaldar Sveinssonar:
2. Elín Þorvaldsdóttir húsfreyja á Seltjarnarnesi, f. 11. október 1941 í Neskaupstað. Maður hennar Pálmi Eyþórsson, látinn.
3. Anna Sigurlaug Þorvaldsdóttir húsfreyja í Þorlákshöfn, f. 19. mars 1944 í Bár í Neskaupstað. Maður hennar Már Michelsen.
4. Sæunn Þorvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur, húsfreyja í Svíþjóð, f. 8. maí 1946 í Bár í Neskaupstað. Fósturforeldrar Björn Levý Gestsson, f. 28. september 1889 og síðari kona hans Jóhanna Lárusdóttir, f. 15. maí 1013. Maður hennar Sigurður Þorsteinsson.
5. Þorvaldur Þorvaldsson sjómaður, f. 13. mars 1948 í Vestra-Stakkagerði, d. 2. mars 2009. Kona hans Sigríður Björk Þórisdóttir.
III. Barn Sigríðar og Baldurs Sigurlássonar:
6. Erla Kristinsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og Garðabæ, f. 25. desember 1950 í Vestra-Stakkagerði, var ættleidd . Maður hennar Halldór Svavarsson, látinn.
IV. Börn Sigríðar og Jóns Sigurðar Jóhannessonar:
7. Halldór Sigurðsson bifvélavirki í Reykjavík, f. 19. desember 1953 í Vestra-Stakkagerði, d. 15. janúar 2018. Kona hans Eyrún Guðbjörnsdóttir.
8. Einar Sigurðsson bakarameistari í Þorlákshöfn, f. 26. mars 1955 í Vestra-Stakkagerði. Kona hans Arnheiður Svavarsdóttir.
9. Björk Sigurðardóttir húsfreyja í Hafnarfirði, býr í Bláskógabyggð, f. 7. maí 1957 í Vestra-Stakkagerði. Fyrrum maður hennar Víðir Ástberg Pálsson.
10. Sæmundur Sigurðsson sendibílstjóri í Reykjavík, f. 5. febrúar 1960 í Eyjum. Kona hans Elín Halla Gunnarsdóttir, látin.
11. Sigurður Sigurðsson starfsmaður Volvoverksmiðjanna í Svíþjóð, f. 27. febrúar 1964, d. 5. ágúst 1990. Kona hans Sigurjóna Örlygsdóttir, látin.

Gunnar ólst upp hjá móðurforeldrum sínum á Staðarfelli. Hann fór að Síreksstöðum í Vopnafirði 1950, skráður tökudrengur þar 1950, vinnudrengur þar með lögheimili á Staðarfelli 1952, vinnumaður þar 1956, fóstursonur húsbóndans þar Hjálmars Jósefssonar 1960. Gunnar bjó í Vopnafirði til ársins 1974, er hann fluttist til Sandgerðis. Þar hefur hann búið síðan.
Gunnar nam múraraiðn, lauk sveinsprófi í Keflavík 1978. Meistari hans var Óskar Guðjónsson.
Þau Bjarnveig giftu sig 1978, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Sandgerði.

I. Kona Gunnars, (30. desember 1978), er Bjarnveig Gunnarsdóttir húsfreyja, f. 23. janúar 1953 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Gunnar Eiríkur Bjarnason bóndi og hreppstjóri í Böðvarsholti í Staðarsveit á Snæfellsnesi, síðar í Reykjavík og Ólafsvík, f. 16. nóvember 1922 í Böðvarsholti, d. 20. maí 2016, og kona hans Áslaug Sesselja Þorsteinsdóttir frá Straumfjarðartungu í Eyja- og Miklaholtshreppi, húsfreyja, f. 15. apríl 1929, d. 17. desember 1988.
Börn þeirra:
1. Atli Gunnarsson lögregluþjónn, f. 16. nóvember 1976 í Reykjavík. Sambýliskona hans Harpa Lind Tómasdóttir.
2. Harpa Dögg Gunnarsdóttir skrifstofumaður, ógift, f. 25. apríl 1980 í Keflavík.
3. Sævar Már Gunnarsson rafvirki, f. 2. júní 1985 í Reykjavík. Sambýliskona hans Katrín Salóme Hafþórsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bollagarðaætt á Seltjarnarnesi. Niðjatal Einars Hjörtssonar útvegsbónda í Bollagörðum og konu hans Önnu Jónsdóttur og barnsmóður hans Sigríðar Jónsdóttur. Gylfi Ásmundsson tók saman. Þjóðsaga. Reykjavík 1990.
  • Gunnar.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Múraratal og steinsmiða. 2. útgáfa, aukin. Þorsteinn Jónsson, Brynjólfur Ámundason. Þjóðsaga 1993.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.