Gunnar Halldórsson (Kalmanstjörn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnar Halldórsson frá Kalmanstjörn, sjómaður, vélstjóri fæddist 9. janúar 1940.
Foreldrar hans voru Halldór Jónsson frá Garðstöðum, sjómaður, vélstjóri, verkamaður, f. 28. september 1908 á Löndum, d. 4. júlí 1976, og kona hans Karólína Ágústa Sveinsdóttir frá Seyðisfirði, húsfreyja, f. 19. nóvember 1919, d. 26. júní 1984.

Börn Ágústu og Halldórs:
1. Sveinn Gunnþór Halldórsson, f. 2. maí 1938 á Skólavegi 23, vélstjóri, útgerðarmaður, hafnarvörður, kvæntur Þóru Birgit Bernódusdóttur, látin.
2. Gunnar Halldórsson, f. 9. janúar 1940 í Skálholti, vélstjóri, kranabílstjóri, kvæntur fyrr, skildu, Jóhönnu Andersen, síðar Valdísi Magnúsdóttur.
3. Þórunn Dóra Halldórsdóttir, húsfreyja, fiskvinnslukona, f. 22. júlí 1948 á Kalmanstjörn, gift Halldóri R. Martinez, látinn.
4. Grétar Halldórsson tvíburi, f. 8. desember 1952 á Kalmanstjörn, sjómaður, vélstjóri, d. 19. september 1987. Kona hans er Guðný Bóel Guðbjartsdóttir.
5. Andvana tvíburi, f. 8. desember 1952 á Kalmanstjörn.

Gunnar var með foreldrum sínum í æsku, í Skálholti við Landagötu, á Kalmanstjörn og í Byggðarholti.
Hann nam vélstjórn og stundaði sjómennsku.
Þau Jóhanna giftu sig 1959, eignuðust fjögur börn, en misstu eitt þeirra nýfætt og annað fimm ára gamalt.
Þau bjuggu í fyrstu á Hólmi, Vesturvegi 16 við giftingu, á Laugalandi 1960 og enn 1965, en bjuggu á Hólagötu 36 við Gos.
Þau Jóhanna skildu 1979.
Gunnar flutti til Þorlákshafnar 1979 og vann með bílkrana til starfsloka 2016.
Hann býr nú á Selfossi.
Þau Valdís giftu sig 1980, eiga ekki börn saman.

Gunnar er tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (6. júní 1959, skildu), var Jóhanna Andersen húsfreyja, fiskvinnslukona frá Kiðjabergi, f. 9. febrúar 1938, d. 2. júní 2016.
Börn þeirra:
1. Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir, f. 13. febrúar 1959, d. 13. apríl 1964.
2. Stúlka, f. 21. júlí 1960, d. sama dag.
3. Helgi Þór Gunnarsson sjómaður, verkamaður, Áshamri 58, f. 6. maí 1962. Kona hans Auðbjörg Svava Björgvinsdóttir.
4. Halldór Jörgen Gunnarsson viðskiptalögfræðingur í Hafnarfirði, f. 7. október 1965. Kona hans Jóhanna Inga Hjartardóttir.

II. Síðari kona Gunnars, (1980) er Valdís Magnúsdóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1954 á Drangsnesi. Þau eru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.