Guðrún Sigurðardóttir (Birkihlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja að Birkihlíð 20 fæddist 11. júlí 1910 og lést 21. nóvember 1972.
Foreldrar hennar voru Sigurður Þórðarson, f. 8. apríl 1878, d. 13. september 1954, og kona hans Elín Jónsdóttir húsfreyja, f. 13. október 1886, d. 11. mars 1920.

Föðursystir Guðrúnar var Guðfinna Þórðardóttir húsfreyja í Stórhöfða, kona Jónatans Jónssonar vitavarðar.

I. Barnsfaðir Guðrúnar var Aðalsteinn Guðjón Guðbjartsson sjómaður, verkamaður, f. 27. apríl 1899 í Furufirði á Hornströndum, d. 26. september 1973 í Reykjavík.
Barn þeirra:
1. Elín Sigríður Aðalsteinsdóttir húsfreyja í Kópavogi, f. 4. júlí 1936.

II. Maður Guðrúnar var Árni Stefánsson frá Ási, bifreiðarstjóri, póstur, f. 11. október 1919, d. 8. mars 1994.
Þau byggðu Birkihlíð 20.
Þau Árni voru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Árni Árnason.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.
  • Garður.is.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.