Guðrún Guðmundsdóttir (Uppsölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Guðmundsdóttir frá Uppsölum, húsfreyja fæddist 18. júlí 1906 og lést 19. október 1977.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson bóndi, verkamaður í Uppsölum, f. 4. júlí 1867 að Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 29. júní 1950, og kona hans Guðrún Þorfinnsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1862 í Steinasókn u. Eyjafjöllum, d. 27. janúar 1930.

Börn Guðmundar og Guðrúnar voru:
1. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum, (Brekastíg 30), f. 18. apríl 1891, d. 16. september 1988.
2. Einar Guðmundsson, f. 12. júlí 1892, drukknaði 3. febrúar 1915 í Eyjum.
3. Þorfinna Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. júní 1893, d. 26. október 1984.
4. Steinvör Guðmundsdóttir, f. 17. ágúst 1895, bjó síðast í Eyjum, d. 13. mars 1987.
5. Oddný Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. nóvember 1897, d. 9. desember 1980.
6. Einar Jón Guðmundsson sjómaður, verkamaður, f. 24. janúar 1898, d. 20. janúar 1975.
7. Sigurður Guðmundsson verkamaður, smiður á Skagaströnd, f. 29. maí 1900, d. 2. desember 1984.
8. Árný Guðmundsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 30. desember 1901, d. 27. febrúar 1988.
9. Anna Sigurlaug Guðmundsdóttir sjúklingur, f. 8. desember 1903, d. 3. ágúst 1963.
10. Guðmundur Guðmundsson málarameistari, f. 18. maí 1905, d. 14. september 1981.
11. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 18. júlí 1906, d. 19. október 1977.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku og fluttist með þeim að Kirkjubæ 1912, var síðan með þeim í Uppsölum, en 1929 ól hún andvana dreng í Stakkholti.
Móðir hennar lést 1930. Guðrún bjó í Uppsölum með föður sínum og nokkrum systkinum 1930.
Þau Jón Bjarni giftu sig 1947, eignuðust Guðmund 1948 og bjuggu á hluta Uppsala 1949.
Jón Bjarni var 1. vélstjóri á Helga VE-333, er hann fórst á Faxaskeri 7. janúar 1950.
Guðrún lést 1977.

I. Barnsfaðir ókunnur.
Barn þeirra var
1. Andvana drengur, f. 28. janúar 1929 í Stakkholti.

II. Maður hennar, (5. apríl 1947), var Jón Bjarni Valdimarsson vélstjóri, f. 25. september 1915, drukknaði 7. janúar 1950.
Barn þeirra var
2. Guðmundur Jónsson bifvélavirki, f. 1. september 1948.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.