Guðrún Eyvindsdóttir (Brekkuhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Eyvindsdóttir frá Brekkuhúsi, húsfreyja í Móakoti í Garðahverfi í Gullbringusýslu, fæddist 11. nóvember 1815 og lést 2. apríl 1888.
Foreldrar hennar voru Eyvindur Jónsson bóndi í Brekkuhúsi, f. 1787, d. 7. apríl 1849, og kona hans Valgerður Björnsdóttir húsfreyja, skírð 15. apríl 1776, d. 11. apríl 1868.

Guðrún var nýfædd í Brekkuhúsi hjá foreldrum sínum 1815 og var þar 1816. Hún var ekki með þeim þar 1820.
Hún var tökubarn í Móakoti 1821 og enn 1835, vinnukona á Húsatóftum í Grindavík 1835, gift húsfreyja í Móakoti í Garðasókn í Gullbr.s. 1840 með Eyjólfi og börnunum Þóreyju 3 ára, Guðmundi 2 ára, Valgerði 1 árs og tökubarninu Guðrúnu Jónsdóttur 10 ára.
Börnin voru með þeim 1845 í Móakoti. 1850 hafði Margrét 1 árs bæst í hópinn. 1855 höfðu Eyjólfur 5 ára og Jón 1 árs bæst við.
Eyjólfur maður Guðrúnar lést 1858 og 1860 var Guðrún ekkja og „lifir af sjó“ í Móakoti. Hjá henni voru börnin nema Jón. Hann hafði dáið 1856.
1870 var Guðrún hjá dóttur sinni Valgerði húsfreyju á Háteigi í Garðasókn, en hún var gift Teiti Hanssyni bónda. Þar var einnig Þórey dóttir hennar ógift 32 ára. og 1880 var Guðrún hjá Eyjólfi syni sínum á Hvaleyri í Garðasókn.
Hún lést 1888.

I. Maður Guðrúnar var Eyjólfur Hinriksson bóndi, af Ásgarðsætt í Grímsnesi, f. 11. nóvember 1811 í Seli í Grímsnesi, d. 22. júlí 1858 í Móakoti í Garðahreppi. Foreldrar hans voru Hinrik Ólafsson bóndi í Gröf og víðar, f. í ágúst 1766 (skírður 2. ágúst) í Kringlu í Grímsnesi, d. 4. október 1820 í Seli, og kona hans Þórey Eyjólfsdóttir húsfreyja í Seli, f. 19. október 1782 á Þóroddsstöðum, d. 22. desember 1860 í Stærribæ í Grímsnesi.
Börn þeirra:
1. Þórey Eyjólfsdóttir, f. 1837, d. 21. janúar 1888. Hún var til heimilis hjá Guðmundi bróður sínum í Hlíð 1880.
2. Guðmundur Eyjólfsson bóndi og hreppstjóri í Hlíð í Garðahreppi, f. 28. október 1839, d. 18. maí 1930, kvæntur Ingunni Magnúsdóttur húsfreyju, f. 5. janúar 1839 í Engey, d. 13. maí 1903 í Hlíð í Garðahreppi.
3. Valgerður Eyjólfsdóttir húsfreyja á Háteigi í Garðahreppi og síðar í Reykjavík, f. 27. febrúar 1840 í Móakoti í Garðahreppi, d. 7. júní 1935 í Reykjavík, gift Teiti Hanssyni (Þorgrímssyni) bónda, f. 20. apríl 1838, d. 3. ágúst 1917 í Reykjavík.
4. Jens Eyjólfsson vinnumaður, f. 25. maí 1841 í Móakoti, d. 19. maí 1874 í Móakoti.
5. Hinrik Eyjólfsson, f. 21. september 1842 í Móakoti, d. 19. október 1844 í Móakoti.
6. Hinrik Eyjólfsson, f. 24. nóvember 1843 í Móakoti, d. 4. desember 1844 í Móakoti.
7. Margrét Eyjólfsdóttir húsfreyja í Garðhúsum og víðar, f. 20. maí 1849, d. 8. febrúar 1938 í Reykjavík, gift Steingrími Guðmundssyni sjómanni, f. í september 1737 í Reykjavík, d. 18. ágúst 1895 í Garðhúsum.
8. Eyjólfur Eyjólfsson sjómaður á Hvaleyri, bóndi á Hausastöðum, f. 9. október 1851, d. 29. október 1922, kvæntur Helgu Einarsdóttur húsfreyju, f. 26. apríl 1853 í Nýjabæ á Garðahreppi, d. 28. júní 1882 á Hvaleyri. Sambýliskona hans var síðar Þorgerður Halldórsdóttir bústýra, f. 6. apríl 1850 á Skerseyri í Garðahreppi, d. 4. ágúst 1935 .
9. Hinrik Eyjólfsson, f. 9. september 1853 í Móakoti, d. 3. október 1853.
10. Jón Eyjólfsson, f. 15. maí 1855 í Móakoti, d. 23. júní 1856 í Móakoti.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.