Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir frá Viðey, húsfreyja og kennari á Flateyri fæddist 2. ágúst 1914 á Ytri-Hóli í Landeyjum og lést 26. apríl 2006 á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson frá Bjólu í Djúpárhreppi, bóndi, útgerðarmaður í Viðey, f. 18. nóvember 1885 í Rifshalakoti í Ásahreppi, Rang., d. 14. mars 1943 í Eyjum, og kona hans Pálína Jónsdóttir húsfreyja, f. 14. júlí 1880 í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, d. 6. mars 1963 í Reykjavík.

Börn Pálínu og Guðmundar:
1. Guðmunda Pálína Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 8. júlí 1908, d. 24. desember 1987. Maður hennar var Adolph Lauritz Hólm.
2. Jónína Þórunn Guðmundsdóttir, f. 1. desember 1909, d. 19. júní 1910.
3. Karl Óskar Guðmundsson skipstjóri, f. 6. apríl 1911, d. 16. janúar 1986.
4. Jón Óskar Guðmundsson bóndi í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., síðar smiður í Reykjavík, f. 30. mars 1912, d. 17. mars 2009. Hann var fóstraður hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Kona hans var Sigurbjörg Gísladóttir.
5. Ármann Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 28. maí 1913, d. 3. júlí 2002.
6. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja, kennari á Flateyri, f. 2. ágúst 1914, d. 26. apríl 2006.
7. Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. desember 1915, d. 29. maí 2011.
8. Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Viðey, f. 19. apríl 1917, d. 14. október 1998.
9. Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. júlí 1918, d. 2. janúar 2012. Hún var fóstruð hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Maður hennar var Óskar Pálsson.
10. Geir Óskar Guðmundsson véltæknifræðingur í Reykjavík, f. 18. desember 1920, d. 5. október 1991.
11. Sigurður Óskar Guðmundsson verkamaður í Viðey, f. 25. mars 1922, d. 27. janúar 1980.
12. Kristinn Óskar Guðmundsson lögfræðingur, bæjarstjóri, f. 2. nóvember 1924, d. 26. febrúar 2011.
Börn Guðmundar Einarssonar og Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu, f. 11. desember 1891, d. 13. janúar 1957:
13. Aðalheiður Guðmundsdóttir verslunarmaður í Reykjavík, f. 25. nóvember 1919, d. 5. ágúst 2008. Hún var ógift.
14. Guðbjörg Svava Guðmundsdóttir húsfreyja á Ísafirði, f. 16. september 1921, d. 22. desember 2007. Maður hennar var Ólafur Markús Guðjónsson stýrimaður.
15. Ólafía Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. september 1921, d. 17. apríl 1992.
Barn Guðmundar Einarssonar og Steinunnar Guðmundsdóttur vinnukonu á Bjólu í Djúpárhreppi:
16. Helgi Guðmundsson bóndi í Borgarholti í Stokkseyrarhreppi, f. 13. september 1902, d. 25. september 1932. Kona hans var Steinvör Jónsdóttir.
Uppeldisbróðir systkinanna, sonur Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu var
17. Ragnar Hafliðason málarameistari, kaupmaður, f. 12. nóvember 1928 í Viðey, d. 3. desember 2019.

Guðrún Ágústa var skráð hjú í Bjólu í Ásahreppi 1921, þá sex ára, hjá föðurforeldrum sínum, sama 1922, 1923, fór þaðan með ömmu sinni að Laugarási 1923, var hjá foreldrum sínum í Viðey 1930, farin 1934, komin með Jóni og fæddi Guðríði Eyrúnu í Viðey 1936. Þau fluttu til Flateyrar, eignuðust Ólöfu Soffíu þar 1942.
Þau Jón giftu sig 1936, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Flateyri.
Guðrún kenndi handavinnu við barna- og unglingaskólann á Flateyri frá 1944-1959, varð rekstrarstjóri samkomuhússins og sat um skeið í sveitarstjórn, flutti til Reykjavíkur 1962.
Jón lést 1878 og Guðrún Ágústa 2006.

I. Maður Guðrúnar Ágústu, (11. júlí 1936), var Jón Bachmann Ólafsson húsasmiður, f. 5. mars 1914, d. 15. júní 1978. Foreldrar hans voru Ólafur Hafliðason sjómaður, verkamaður á Flateyri, f. 16. nóvember 1867, d. 9. október 1955, og kona hans Soffía Arnfríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 9. apríl 1878, d. 16. desember 1934.
Börn þeirra:
1. Guðríður Eyrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 22. október 1936 í Viðey, d. 4. júní 2014. Maður hennar Viggó Þorsteinsson.
2. Ólöf Soffía Jónsdóttir handavinnukennari, f. 16. apríl 1942. Óg.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 12. maí 2006. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.