Guðný Þorbjarnardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðný Þorbjarnardóttir frá Kirkjulandshjáleigu í A.-Landeyjum, húsfreyja fæddist 17. ágúst 1848 í Voðmúlastaðaausturhjáleigu þar og lést 16. maí 1940 á Brimhólum.
Foreldrar hennar voru Þorbjörn Jónsson bóndi, f. 24. maí 1810 á Brekkum í Hvolhreppi, Rang., d. 22. apríl 1910 á Seljalandi u. Eyjafjöllum, og síðari kona hans Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1820 á Núpi u. Eyjafjöllum, d. 13. mars 1888.
Systur Guðrúnar Sigurðardóttur móður Guðnýjar, - í Eyjum voru:
Alsystir var
1. Þuríður Sigurðardóttir húsfreyja, mormóni á Löndum.
Háfsystur hennar, samfeðra, í Eyjum voru:
2. Guðrún Sigurðardóttir eldri, húsfreyja á Kirkjubæ, Presthúsum og í Hólshúsi f. 1. janúar 1827, d. 13. maí 1882.
3. Járngerður Sigurðardóttir húsfreyja í Draumbæ, Túni og Stóra-Gerði, síðar í Fagurlyst, f. 17. september 1830, d. 23. desember 1876.
4. Guðrún Sigurðardóttir yngri, húsfreyja, f. 6. apríl 1834, d. 31. ágúst 1897 í Vesturheimi.

Guðný var með foreldrum sínum í Voðmúlastaðaausturhjáleigu í Landeyjum 1850 og 1860, í Kirkjulandshjáleigu þar 1870, kona Jóns Jónssonar húsmanns á Bakka þar 1880, húsfreyja á Tjörnum í u. V-Eyjafjöllum 1890, á Seljalandi þar 1901 og 1910.
Þau Jón fluttu til Eyja 1917. Þeim fylgdi Elín Kortsdóttir tökubarn átta ára. Hún hafði verið hjá þeim 1910.
Guðný var ekkja með Elínu hjá sér hjá Sigríði dóttur sinni á Lögbergi 1919 og 1923, til heimilis á Eyjarhólum 1924 og 1927 með Elínu, hjá Guðrúnu dóttur sinni á Brimhólum 1930 og síðan.
Þau Jón giftu sig 1878, eignuðust fimm börn.
Jón lést 1918 og Guðný 1940.

I. Maður Guðnýjar, (11. október 1878), var Jón Jónsson frá Jónshúsi, bóndi á Tjörnum og Seljalandi u. Eyjafjöllum, f. 13. nóvember 1843, d. 5. desember 1918.
Börn þeirra :
1. Jónína Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 5. maí 1878, d. 7. október 1932.
2. Sigríður Jónsdóttir húsfreyja á Lögbergi, f. 4. nóvember 1883, d. 2. ágúst 1923, kona Sigurðar Sigurðssonar útvegsbónda og sjómanns, f. 26. júlí 1883, d. 25. janúar 1961.
3. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Brimhólum, f. 24. maí 1884, d. 5. maí 1976, kona Hannesar Sigurðssonar, f. 6. ágúst 1881, d. 14. febrúar 1981.
4. Soffía Jónsdóttir saumakona í Görðum, f. 14. september 1885, d. 31. janúar 1965.
5. Marta Jónsdóttir, f. 25. janúar 1892 á Tjörnum, síðast á Þórsgötu 23 í Reykjavík, d. 18. apríl 1924.
Fósturbarn:
7. Elín Kortsdóttir, f. 3. nóvember 1909 á Fitjamýri u. V-Eyjafjöllum, d. 4. júlí 1930, grafin í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Kort Elísson vinnumaður á Fit og Þórdís Ingibjörg Sæmundsdóttir vinnukona á Fitjamýri.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.