Guðmundur Magnússon (Skansinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur Magnússon.

Guðmundur Magnússon frá Skansinum, blikksmiður fæddist þar 19. september 1934 og lést 4. janúar 2014 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Magnús Þórðarson kaupmaður, verkamaður f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955, og kona hans Gíslína Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. nóvember 1889 í Bakkakoti u. Eyjafjöllum, d. 22. mars 1984.

Börn Magnúsar og Gíslínu:
1. Halldóra Guðleif Magnúsdóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1917 í Langa-Hvammi, d. 28. desember 2004.
2. Drengur, f. 15. janúar 1919 í Langa-Hvammi, lést nokkurra daga gamall.
3. Sigríður Gunnlaugsdóttir Magnúsdóttir húsfreyja, f. 4. maí 1921 í Langa-Hvammi, d. 30. ágúst 2013.
4. Ívar Magnússon verkstjóri, f. 3. október 1923 í Langa-Hvammi, d. 13. nóvember 2005.
5. Guðjón Gísli Magnússon sjómaður, f. 20. október 1924 í Litlakoti, d. 27. febrúar 2000.
6. Óskar Magnússon sjómaður, f. 15 ágúst 1927 á Miðhúsum, d. 7. janúar 1950.
7. Guðrún Lilja Magnúsdóttir ljósmóðir, f. 27. september 1928 á Miðhúsum, d. 11. ágúst 2012.
8. Magnús Magnússon bóndi, verkamaður, f. 10. febrúar 1930 á Miðhúsum, d. 3. janúar 2009.
9. Klara Magnúsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1931 á Miðhúsum, d. 6. desember 1987.
10. Þórður Magnússon bifreiðastjóri, verktaki, f. 11. apríl 1933 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 6. mars 2021.
11. Guðmundur Magnússon blikksmiður, f. 19. september 1934 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 4. janúar 2014.

Börn Magnúsar og Margrétar Bjarnadóttur sambýliskonu hans:
12. Þórarinn Sigurður Thorlacius sjómaður, f. 27. nóvember 1906 í Langa-Hvammi, drukknaði 29. janúar 1940.
13. Magnús Sigurður Hlíðdal Magnússon sjómaður, f. 11. júlí 1910 í Langa-Hvammi, d. 13. maí 1995.
14. Anna Sigrid Magnúsdóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1913 í Langa-Hvammi, d. 20. apríl 1991.

Börn Magnúsar og Magneu Gísladóttur.
15. Hafsteinn Magnússon kyndari, f. 17. júní 1913, d. 30. desember 2002.
16. Axel Hálfdán Magnússon sjómaður, símsmiður, f. 28. maí 1914 í Langa-Hvammi, d. 8. janúar 2000.
17. Þorbjörn Ólafur Maríus Magnússon sjómaður, f. 19. september 1916 í Langa-Hvammi, d. í apríl 1943.

Börn Þórðar Ívarssonar í Eyjum:
1. Þorkell Þórðarson í Sandprýði, f. 7. desember 1872 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 14.júlí 1945.
2. Magnús Þórðarson Thorlacius kaupmaður, bóndi, verkamaður á Skansinum, f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955.
3. Gísli Þórðarson verkamaður, f. 5. desember 1877 að Ormskoti í Fljótshlíð, síðast í Görðum, d. 7. nóvember 1943.
4. Guðrún Þórðardóttir verkakona, f. 31. ágúst 1882 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. mars 1878.
Barn Þórðar Ívarssonar og fyrri konu hans Sigríðar Nikulásdóttur, f. 8. mars 1838, d. 24. maí 1864 var
5. Ívar Þórðarson á Mið-Sámsstöðum í Fljótshlíð, bóndi, síðar í Eyjum, f. 3. september 1863, d. 10. apríl 1924.

Guðmundur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann hóf störf í Blikksmiðjunni Glófaxa 1959, lærði blikksmíði og tók sveinspróf 1079 og vann við iðnina og ýmiskonar málmvinnslu.
Þau Hjördís giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Skansinum, en fluttu til Reykjavíkur 1957 og bjuggu þar, í Glaðheimum til 2006 og síðan við Kleppsveg 62.
Guðmundur lést 2014.

I. Kona Guðmundar var Hjördís Þórhallsdóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1933, d. 3. mars 2014. Foreldrar hennar voru Þórhallur Jóhannsson fyrrum bóndi í Reykjavík, f. 19. desember 1888, d. 18. maí 1967, og kona hans Aðalheiður Ísafold Albertsdóttir frá Bíldudal, húsfreyja, f. 7. desember 1900, d. 3. desember 1983.
Börn þeirra:
1. Aðalheiður Guðmundsdóttir, f. 27. október 1954. Maður hennar Sigurjón Guðmundsson.
2. Guðrún Lilja Guðmundsdóttir, f. 13. ágúst 1962. Barnsfeður hennar Aðalsteinn Stefánsson og Kristinn Ólafur Hreiðarsson.
3. Þórhallur Guðmundsson, f. 29. maí 1967. Kona hans Valgerður Margrét Þorgilsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.