Guðmundur Guðmundsson (Fögruvöllum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Guðmundsson bóndi og sjómaður á Fögruvöllum fæddist 22. nóvember 1847 og lést 10. febrúar 1890.
Foreldrar hans voru Guðmundur Hávarðsson sjómaður og tómthúsmaður í Steinmóðshúsi, f. 1810, d. 28. maí 1860, og kona hans Ragnhildur Ísleiksdóttir húsfreyja, f. 2. ágúst 1808, d. 25. janúar 1865.

Guðmundur var þriggja ára með foreldrum sínum í Guðmundarhúsi 1850, 8 ára með þeim í Steinmóðshúsi 1855, 13 ára með þeim þar 1860, 22 ára vinnumaður í Godthaab 1870.
Við manntal 1880 var hann kominn að Fögruvöllum með Jóhönnu konu sinni og börnunum Margréti Jónínu 6 ára og Jóhanni 3 ára.
Guðmundur var í Herfylkingunni.
Hann lést 1890.

Kona Guðmundar, (5. nóvember 1871), var Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja á Fögruvöllum f. 2. maí 1849 og lést í Vesturheimi 16. mars 1916.
Börn þeirra hér:
1. Margrét Guðmundsdóttir, f. 4. október 1871, d. 16. desember 1871 úr kíghósta.
2. Jón Guðmundsson, f. 24. desember 1872, d. 5. janúar 1873 „af hægðatregðu“.
3. Margrét Jónína Guðmundsdóttir, f. 5. apríl 1874. Hún fór til Vesturheims, sögð látin 20. nóvember 1891.
4. Jóhann Guðmundsson, f. 1. júlí 1877, d. 6. júlí 1884 úr heilabólgu.
5. Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 3. nóvember 1884, d. 9. nóvember 1884 „úr krampa“, líklega ginklofi.
6. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 30. desember 1885, d. 7. janúar 1886, „dó úr krampa“, líklega ginklofi.
7. Júlíana Guðmundsdóttir, f. 19. júlí 1888, d. 3. júní 1890 úr heilabólgu.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.