Guðmundur Einarsson (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Einarsson útvegsbóndi á Seyðisfirði fæddist 12. apríl 1856 og lést 2. ágúst 1936.
Foreldrar hans voru Einar Jónsson bóndi og sjómaður frá Dölum, f. 1815, d. 13. mars 1894 og barnsmóðir hans Guðrún Sigurðardóttir, síðar húsfreyja á Miðhúsum, gift Helga Jónssyni. Hún var f. 8. september 1806, d. 3. september 1885.

Guðmundur var 5 ára með móður sinni og Helga Jónssyni fósturföður sínum á Miðhúsum 1860, með þeim og Margréti Helgadóttur hálfsystur sinni þar 1870, 24 ára vinnumaður á Búastöðum vestri 1880.
Hann fluttist til Seyðisfjarðar og gerðist þar sjómaður og útgerðarmaður.
Guðmundur var 35 ára sjómaður á Kvennabrekku í Seyðisfirði 1890 með konu sinni Oddnýju 34 ára og börnunum Dagbjarti 4 ára, Einari 3 ára og Elsu Dórótheu Ólafíu eins árs. Í heimili hjá þeim var Sigurður Vigfússon vinnumaður 25 ára.
Við manntal 1901 var Guðmundur búsettur í Guðmundarhúsi á Seyðisfirði með fjölskyldu sinni og bæst höfðu við börnin Guðrún Helga, Oktavía Guðný, Árni, Ingimundur og Vilborg Júlíana, en Dagbjartur var vinnumaður í Dvergasteini í Seyðisfirði.
Þau bjuggu á Hlíðarenda þar 1910 með 7 börnum sínum. 1920 voru þau með þrem börnum sínum á Kirkjuhvoli þar.
Guðmundur lést 1936.

I. Kona Guðmundar var Oddný Ólafsdóttir frá London.
Börn Guðmundar og Oddnýjar hér:
1. Andvana fætt sveinbarn 26. febrúar 1885.
2. Dagbjartur Guðmundsson útvegsbóndi á Seyðisfirði, f. 19. október 1886, d. 9. apríl 1972.
3. Einar Guðmundsson útgerðarmaður, bóndi á Kirkjuhvoli í Seyðisfirði, f. 1. nóvember 1887, d. 31. júlí 1929, kvæntur Dagmar Þorkelsdóttur Eiríkssonar.
4. Elsa Dóróthea Ólafía Guðmundsdóttir bústýra í Vinaminni 1910, f. 28. júlí 1889, d. 4. desember 1918.
5. Guðrún Helga Guðmundsdóttir, f. 7. ágúst 1891. Hún var á Seyðisfirði 1930.
6. Oktavía Guðný Guðmundsdóttir húsfreyja í Helli í Eyjum, f. 5. október 1893, d. 22. október 1980, kona Sigurðar Gíslasonar múrara. Hún var síðast í Hafnarfirði.
7. Árni Ingimundur Guðmundsson vélstjóri, f. 22. mars 1896, drukknaði 22. mars 1955.
8. Vilborg Júlíana Guðmundsdóttir húsfreyja á Seyðisfirði, f. 18. júlí 1896, d. 21. apríl 1978.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.