Guðlaugur Stefánsson (Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðlaugur

Guðlaugur Óskar Stefánsson í Gerði fæddist 12. ágúst 1916 og lést 22. júlí 1989, 72 ára gamall. Guðlaugur var sonur Stefáns Guðlaugssonar í Gerði og konu hans Sigurfinnu Þórðardóttur.

Guðlaugur var kaupmaður hér í bæ. Hann var forstjóri togaraútgerðar bæjarins um skeið.

Kona hans var Guðný Laufey Eyvindsdóttir Þórarinssonar, f. 19. desember 1917, d. 1. desember 1987.
Börn þeirra Laufeyjar voru:
1. Guðfinna Lilja Guðlaugsdóttir, f. 14. desember 1948.
2. Inga Þórarinsdóttir, f. 14. maí 1946. Hún var kjörbarn þeirra hjóna, dóttir Þórarins bróður Laufeyjar.

Myndir