Guðjón Sigmundsson (Hólmgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Guðjón Sigmundsson)
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón Sigmundsson.

Guðjón Sigmundsson frá Hólmgarði, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, verkstjóri fæddist 16. janúar 1926 í Vinaminni og lést 13. ágúst 1979.
Foreldrar hans voru Sigmundur Jónsson trésmiður, sjómaður, vélstjóri, f. 14. apríl 1875 á Hólum í Norðfirði, d. 4. október 1930, og sambýliskona hans Sólbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 23. nóvember 1887 í Vestra-Skorholti í Leirársveit í Borg., d. 7. október 1965 í Reykjavík.

Börn Sigmundar og hálfsystkin Guðjóns:
1. Ólafur Emil Sigmundsson sjómaður í Reykjavík, síðar á Dalvík, f. 20. desember 1899 á Seyðisfirði, d. 30. nóvember 1941. Hann var tökubarn í Garðhúsum 1910.
2. Adólf Sigmundsson, f. 27. janúar 1901, d. 2. febrúar 1903.
3. Guðmundur Sigmundsson loftskeytamaður í Reykjavík, f. 7. júlí 1902, d. 16. október 1955, ókv.
4. Anna Sigmundsdóttir húsfreyja í Neskaupstað, síðar í Reykjavík, f. 30. janúar 1905 á Nesi í Norðfirði, d. 27. ágúst 1971.

Börn Sólbjargar og Sigmundar:
1. Undína Sigmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. júní 1912 á Sælundi, d. 19. maí 1981.
2. Ríkarður Sigmundsson rafvirkjameistari, kaupmaður í Reykjavík, f. 7. janúar 1914 í Lambhaga, d. 28. desember 1995.
3. Fjóla Sigmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. september 1915 á Hlíðarenda, d. 12. júlí 1987.
4. Svanhvít Ingibjörg Sigmundsdóttir verslunarmaður í Reykjavík, f. 26. september 1917 í Vinaminni, d. 30. apríl 1981.
5. Oddný Friðrikka Sigmundsdóttir verslunarmaður, verkakona í Reykjavík, f. 9. janúar 1920 í Vinaminni, d. 18. febrúar 2010.
6. Hrefna Sigmundsdóttir, f. 21. febrúar 1922 í Vinaminni, d. 16. apríl 2013.
7. Stúlka, f. 11. apríl 1924, d. 28. apríl 1924.
8. Guðjón Sigmundsson sjómaður, skipstjóri, verkstjóri, f. 16. janúar 1926 í Vinaminni, d. 13. ágúst 1979.
9. Hörður Sigmundsson matsveinn í Reykjavík, f. 8. desember 1928 í Vinaminni, d. 19. nóvember 1974.

Guðjón var með foreldrum sínum fyrstu ár sín, en hann missti föður sinn, er hann var á fimmta árinu.
Hann var með móður sinni í Vinaminni, á Njarðargötu 8 og í Hólmgarði.
Guðjón lauk námi í Fiskimannadeild Stýrimannaskólans 1948. Hann var skipstjóri og stýrimaður til 1969, er hann hóf störf hjá Íslenska Álfélaginu. Þar var hann verkstjóri til dánardægurs 1979.
Þau Ester eignuðust fjögur börn.

I. Kona Guðjóns er Ester Sigurjónsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, f. 30. júlí 1925. Foreldrar hennar voru Sigurjón Björnsson skipstjóri á Siglufirði, f. 20. maí 1891, d. 25. nóvember 1966, og kona hans Sigurlaug Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 4. júní 1891, d. 23. desember 1965.
Börn þeirra:
1. Brynja Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 3. maí 1947 í Stykkishólmi. Maður hennar Sigtryggur Eyfjörð Benediktsson.
2. Erlingur Guðjónsson rafvirki í Noregi, f. 9. október 1952, d. 8. júlí 2001. Kona hans Hafdís Guðrún Magnúsdóttir.
3. Hlín Guðjónsdóttir iðjuþjálfi, f. 17. maí 1963. Maður hennar er Gunnlaugur Melsted.
4. Unnur Guðjónsdóttir sjúkraliði, f. 15. ágúst 1964. Maður hennar er Egill Jóhannsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.