Guðbjörg Hjörleifsdóttir (Skálholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir frá Skálholti við Landagötu, húsfreyja, verkakona fæddist þar 20. júlí 1932 og lést 15. ágúst 2021.
Foreldrar hennar voru Hjörleifur Sveinsson frá Selkoti u. Eyjafjöllum, sjómaður, útgerðarmaður, f. 23. janúar 1901, d. 29. september 1997, og kona hans Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir frá Eskifirði, húsfreyja, f. 18. október 1903, d. 6. júlí 1970.

Börn Þóru og Hjörleifs:
1. Sveinn Hjörleifsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 1. ágúst 1927, d. 4. janúar 2004. Kona hans Aðalheiður Maggý Pétursdóttir.
2. Anna Hjörleifsdóttir húsfreyja, póstvarðstjóri í Reykjavík, f. 31. mars 1929, d. 21. febrúar 2018. Maður hennar Sigmundur Páll Lárusson.
3. Friðrik Ágúst Hjörleifsson sjómaður, útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 16. nóvember 1930 í Skálholti, d. 7. október 2014. Kona hans Anna Jóhanna Oddgeirs.
4. Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 20. júlí 1932 í Skálholti. Maður hennar Egill Kristjánsson.
5. Drengur, f. 7. mars 1940, d. sama dag.

Guðbjörg var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann verkakvennastörf í fiskiðnaði.
Þau Egill giftu sig 1954, eignuðust fimm börn, en misstu eitt þeirra tveggja mánaða gamalt. Þau byggðu Ásaveg 24 1953 og bjuggu þar til Goss. Síðar bjuggu þau í Birkihlíð 4, en fluttu í Hraunbúðir nokkru fyrir lát Egils 2015. Guðbjörg dvaldi þar. Hún lést 2021.

I. Maður Guðbjargar, (31. október 1954), var Egill Kristjánsson frá Stað, húsasmíðameistari, f. 14. október 1927, d. 21. ágúst 2015.
Börn þeirra:
1. Þóra Hjördís Egilsdóttir húsfreyja, gangavörður við Hamarsskóla, f. 18. júlí 1953 í Skálholti. Maður hennar Arngrímur Magnússon.
2. Drengur, f. 16. janúar 1955, d. 17. mars 1955.
3. Kristján Egilsson húsasmiður, húsvörður, f. 3. maí 1956 að Ásavegi 24. Kona Pála Björg Pálsdóttir.
4. Guðjón Egilsson húsasmíðameistari, f. 30. júlí 1957 á Ásavegi 24. Fyrrum kona Linda Björk Hrafnkelsdóttir.
5. Sigurbjörn Egilsson sjómaður, smiður, f. 6. júlí 1963. Kona hans Svanfríður Jóhannsdóttir.
6. Björg Egilsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 18. nóvember 1971. Maður hennar Sæmundur Ingvarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.