Guðbjörg Einarsdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Sigríður Einarsdóttir frá Norðurgarði, húsfreyja fæddist 21. desember 1905 í Norðurgarði og lést 12. ágúst 1972.
Foreldrar hennar voru Einar Jónsson bóndi í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937, og kona hans Árný Einarsdóttir húsfreyja, f. 24. apríl 1863, d. 9. ágúst 1938.

Börn Einars og Árnýjar voru:
1. Einar Einarsson, f. 15. september 1892, d. 21. mars 1967.
2. Sigurður Einarsson, f. 16. júní 1895, hrapaði til bana í Geirfuglaskeri 1. júní 1929.
3. Þórarinn Einarsson, f. 20. júlí 1900, d. 17. desember 1903.
4. Ingiríður Einarsdóttir, f. 6. febrúar 1902, d. 30. ágúst 1981.
5. Guðbjörg Sigríður Einarsdóttir húsfreyja, f. 21. desember 1905, d. 12. ágúst 1972.
Barn Einars með Ólöfu Þórðardóttur , síðar húsfreyju á Stóru-Borg undir Eyjafjöllum og síðast í Eyjum.
Barn þeirra var
6. Jónína Einarsdóttir húsfreyja á Seljalandi, f. 25. mars 1885 í Hlíð u. Eyjafjöllum, d. 22. september 1968.

Systkini Einars í Norðurgarði og föðursystkini Guðbjargar í Eyjum voru:
1. Vilborg Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 28. febrúar 1855, mun hafa látist í Utah.
2. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 27. mars 1862, d. 14. janúar 1939, kona Arngríms Sveinbjörnssonar.
3. Bjarni Jónsson í Norðurgarði, bóndi og málari í Utah, f. 19. apríl 1863.
4. Þorkell Jónsson bóndi á Gjábakka, f. 1. október 1867. Hann fluttist til Vesturheims. Kona hans var Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 2. júní 1864.
5. Salgerður Jónsdóttir vinnukona á Kirkjubæ og í Hólshúsi f. 28. desember 1869 á Litlu-Hólum í Mýrdal.

Guðbjörg ólst upp með foreldrum sínum.
Þau Kristinn giftu sig 1932, bjuggu í Norðurgarði vestri og eignuðust sjö börn og fóstruðu Ástu Margréti Sigurðardóttur, sem var dóttir Sigurðar bróður Guðbjargar og Margrétar Jónsdóttur húsfreyju, en þau létust, hann 1929 og hún 1934.
Kristinn lést 1963 og Guðbjörg 1972.

I. Maður Guðbjargar, (17. desember 1932), var Gísli Kristinn Aðalsteinsson bóndi, verkamaður, f. 31. desember 1903 að Efra-Haganesi í Haganesvík í Fljótum, Skagaf., d. 13. júní 1963.
Börn þeirra:
1. Ástrós Eyja Kristinsdóttir, f. 4. nóvember 1933 í Norðurgarði, d. 31. mars 2012.
2. Sigurgeir Sigurður Kristinsson, f. 6. desember 1935 í Norðurgarði, d. 18. febrúar 2016.
3. Guðbjartur Kristinn Kristinsson, f. 12. apríl 1937 í Norðurgarði, d. 3. maí 2015.
4. Guðbrandína Sveinsína Kristinsdóttir, f. 19. júlí 1938 í Norðurgarði.
5. Alfreð Kristinsson, f. 29. nóvember 1939 í Norðurgarði, d. 10. september 1974.
6. Árný Ingiríður Kristinsdóttir, f. 20. desember 1940 í Norðurgarði.
7. Ásta Guðfinna Kristinsdóttir, f. 18. september 1945 í Norðurgarði.
Fósturbarn hjónanna var
8. Ásta Margrét Sigurðardóttir húsfreyja, ræstitæknir í Reykjavík, f. 26. september 1924 á Seljalandi, d. 19. nóvember 1995.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.