Guðrún Sigurðardóttir (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Sigurðardóttir frá Búastöðum fæddist 18. september 1852 og lést 21. mars 1939.
Foreldrar hennar voru Sigurður Torfason sjávarbóndi og hreppstjóri á Búastöðum, f. 14. febrúar 1822, d. 18. apríl 1870, og kona hans Guðríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1829, d. 15. ágúst 1867.

Börn Sigurðar og Guðríðar voru:
1. Jón Sigurðsson, f. 25. febrúar 1851, d. 11. mars 1851 „af Barnaveikin ginklofa“.
2. Guðrún Sigurðardóttir vinnukona, f. 18. september 1852, d. 21. mars 1939.
3. Hjálmar Sigurðsson, f. 17. ágúst 1853, d. 30. október 1853 „af barnaveiki“.
4. Jón Sigurðsson, f. 22. ágúst 1854, d. 16. nóvember 1854, „dó hastarlega án þess að merki væru um nokkurn sjúkleika“.
5. Einar Sigurðsson skipstjóri, f. 25. febrúar 1856, drukknaði 31. mars 1889.
6. Tómas Sigurðsson, f. 24. mars 1857, d. 5. apríl 1857 úr ginklofa.
7. Sigríður Sigurðardóttir, f. 24. júní 1859, d. 25. janúar 1940.
8. Vilborg Sigurðardóttir, f. 9. júní 1858, d. 20. júní 1858 úr ginklofa.
9. Vilhjálmur Sigurðsson, f. 14. ágúst 1860, d. 2. febrúar 1861 af bólguígerð.
10. Torfi Sigurðsson verkamaður í Norðurbæ á Eyrarbakka 1930, f. 11. nóvember 1861, d. 19. september 1950.
11. Bjarni Sigurðsson, f. 5. ágúst 1863, d. 10. desember 1863 úr „uppdráttarsýki‟.
12. Gróa Björg Sigurðardóttir vinnukona, f. 26. maí 1865, d. 12 júlí 1882.
13. Guðríður Sigurðardóttir vinnukona, f. 13. ágúst 1867, d. 1918.

Guðrún var með foreldrum sínum meðan beggja naut við og með föður sínum uns hann lést 1870, en var léttakind í Godthaab í lok ársins og 1871, var léttastúlka á Löndum 1872-1873, vinnukona þar 1874, vinnukona á Fögruvöllum 1875 til 1877, en þá fluttist hún til Ólafs Torfasonar föðurbróður síns að Árbæ í Ölfusi.
Hún var vinnukona þar 1880 og þar var Torfi bróðir hennar vinnumaður.
Guðrún fluttist þaðan til Reykjavíkur 1887, var vinnukona í Brautarholti í Reykjavík 1890, hjú á Vesturgötu 35 a 1901, hjá sömu húsfreyju á Nýlendugötu 13 1910 og enn 1920.
Hún lést 1939.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.