Guðrún Jónsdóttir Austmann (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Jónsdóttir Austmann (Christiansen) húsfreyja í Chicago í Bandaríkjunum fæddist 28. mars 1855 í Götu og lést 8. júní 1952 í Chicago.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson Austmann beykir, síðar bóndi í Þorlaugargerði, f. 12. apríl 1814 í Holti í Mýrdal, d. 15. mars 1888 í Þorlaugargerði, og kona hans Rósa Hjartardóttir húsfreyja, f. 1822 í Grindavík, d. 14. janúar 1902 í Reykjavík.

Guðrún var með þeim í Götu 1855, en á Oddsstöðum í lok ársins, í Brekkuhúsi 1856, í Þorlaugargerði frá 1857.
Hún var með þeim í Þorlaugargerði 1874, en fór til Kaupmannahafnar 1875. Þaðan fór hún til Vesturheims.
Guðrún var búsett í Chicago og gat sér rithöfundarorð. Hún var gift iðnaðarmanni af norskum ættum. Þau eignuðust. Þau eignuðust tvö börn.

I. Maður Guðrúnar var Richard Christiansen iðnmeistari, f. um 1850, d. 1930 í Chicago.
Börn þeirra hér:
1. Henry Christiansen læknir í Chicago, f. um 1885. Hann var tvíkvæntur.
2. Ester Christiansen (Peggy Richards) söngkona og skrifstofustjóri í Chicago. Maður hennar Ace Jacoby yfirvélameistari í Chicago, f. um 1885.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.