Guðrún Jónsdóttir (Litlalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Jónsdóttir á Litlalandi, húsfreyja fæddist 17. maí 1899 og lést 16. mars 1992.
Foreldrar hennar voru Jón Jóngeirsson bóndi í Vesturholtum u. Eyjafjöllum, f. 10. ágúst 1865, d. 11. apríl 1940, og kona hans Margrét Guðlaugsdóttir húsfreyja, f. 23. júlí 1868 í Sperðli, d. 23. desember 1937 í Brautarholti.

Móðursystkini Guðrúnar í Eyjum:
1. Magnús Guðlaugsson formaður í Fagurlyst, síðari maður Guðrúnar Þorkelsdóttur húsfreyju; hann f. 28. maí 1863, drukknaði 20. maí 1901.
2. Guðbjörg Guðlaugsdóttir húsfreyja í Jakobshúsi, f. 30. ágúst 1874, d. 17. febrúar 1965. Menn hennar voru Sigurður Sigurðsson í Túni, Jakob Tranberg og Einar Einarsson frá Norðurgarði.

Börn Margrétar Guðlaugsdóttur og Jóns Jóngeirssonar í Eyjum:
1. Gunnlaugur Júlíus Jónsson múrarameistari í Stafholti, f. 31. júlí 1895 í Krókatúni, d. 4. september 1978.
2. Ingibergur Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 12. júlí 1897 í Krókatúni u. Eyjafjöllum, d. 15. apríl 1960.
3. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Litlalandi, f. 17. maí 1899 í Lambhúshólskoti, d. 16. mars 1992.
4. Magnús Jónsson bóndi, verkamaður, f. 8. júlí 1901 í Lambhúshólskoti, d. 3. júlí 1986.
5. Sigurður Jónsson sjómaður, f. 28. júlí 1902 í Lambhúshólskoti, drukknaði 27. febrúar 1919, féll út af vb. Skuld.
6. Guðjón Jónsson útgerðarmaður, f. 3. nóvember 1905 í Lambhúshólskoti, d. 22. janúar 1965.
7. Ólafur Jónsson skipasmiður í Nýhöfn, f. 15. maí 1908 í Lambhúshólskoti, d. 12. júlí 1998.

Guðrún var með foreldrum sínum 1901, 1910 og 1920.
Hún fluttist frá Eyjafjöllum til Eyja 1923, giftist Ögmundi í lok ársins. Þau eignuðust 10 börn.
Þau bjuggu í Garðsfjósi 1924, í Kornhól 1925 og enn 1928, en á Laugalandi 1930, á Auðsstöðum 1932, á Múla 1934.
Þau Guðrún voru komin að Litlalandi 1939 og bjuggu þar til Goss.
Guðrún lést 1992, Ögmundur 1995.

Maður Guðrúnar, (26. desember 1923), var Ögmundur Ólafsson útgerðarmaður, vélstjóri, f. 6. júní 1894, d. 29. september 1995.
Börn þeirra:
1. Jón Sveinbjörn Ögmundsson, f. 3. ágúst 1924 í Garðsfjósi, d. 19. júlí 1945.
2. Margrét Ögmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 9. ágúst 1925 í Kornhól, d. 8. apríl 2009.
3. Ólafur Friðrik Ögmundsson bifreiðastjóri í Vík í Mýrdal, síðar í Hveragerði, f. 7. nóvember 1926 í Kornhól, d. 20. apríl 2010.
4. Sigurður Ögmundsson skipstjóri, f. 18. desember 1928 í Kornhól, d. 25. apríl 1987.
5. Ágúst Ögmundsson vélstjóri, síðar starfsmaður símans í Danmörku, f. 7. apríl 1932 á Auðsstöðum, (Brekastíg 15b), d. 19. júní 2003.
6. Guðbjörg Stella Ögmundsdóttir húsfreyja, verslunarmaður í Vík í Mýrdal, f. 11. október 1933.
7. Sigurbjörn Ögmundsson skipstjóri í Hrísey, f. 29. maí 1935 á Múla, Bárugötu 14 B, d. 18. apríl 2015.
8. Málfríður Ögmundsdóttir fulltrúi í Kópavogi, f. 25. nóvember 1939 á Litlalandi.
9. Þóra Björg Ögmundsdóttir verslunarmaður á Selfossi, f. 16. júní 1944 á Kirkjuvegi 59, Litlalandi.
10. Jón Ögmundsson vélvirki við Sigölduvirkjun, f. 18. september 1945 á Litlalandi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Blik 1980, Garðfjósið
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Víkingslækjarætt – niðjatal Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar hreppstjóra. Pétur Zophoníasson og fleiri. Skuggsjá 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.