Guðný Stefánsdóttir (Götu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðný Stefánsdóttir húsfreyja fæddist 15. mars 1864 og lést 2. mars 1941.
Foreldrar hennar voru Stefán Guðmundsson bóndi í Miðskála u. Eyjafjöllum, f. 29. júlí 1842, d. 25. maí 1905, og kona hans Kristný Ólafsdóttir húsfreyja, f. 12. apríl 1842, d. 2. mars 1914.

Guðný var með foreldrum sínum í æsku og enn 1890. Hún var húsfreyja í Skíðbakkahjáleigu í A-Landeyjum 1897-1901, síðan á Sjónarhóli III (Bakka) á Stokkseyri til 1910.
Hún giftist Jóhanni 1901 og eignaðist með honum 4 börn. Þau misstu fyrsta barn sitt, Kristmund, tæplega eins árs.
Þau fluttust með 3 börn sín til Eyja 1910, bjuggu þar í Péturshúsi við manntal 1910, voru á Gjábakka 1911-1913, leigjendur á Sæbergi 1914-1916, í Götu 1917-1923.
Þau fóstruðu Maríu Konráðsdóttur frá 1920 og hún var enn með Guðnýju 1930.
Jóhann lést 1923.
Guðný bjó með Jóel syni sínum og Maríu fósturdóttur sinni á Hásteinsvegi 28 1930, hjá Stefaníu dóttur sinni þar 1940.
Hún lést 1941.

Maður Guðnýjar, (12. nóvember 1901), var Jóhann Guðmundsson bóndi, sjómaður, f. 18. ágúst 1863, d. 25. október 1923.
Börn þeirra í Eyjum:
1. Kristmundur Jóhannes Jóhannsson verkamaður, síðar í Reykjavík, f. 19. október 1899, d. 26. febrúar 1971.
2. Stefanía Jóhannsdóttir húsfreyja, síðar í Reykjavík, f. 20. mars 1902, d. 6. október 1997.
3. Guðni Jóhannsson skipstjóri, síðar á Seltjarnarnesi, f. 8. október 1905, d. 2. nóvember 1985.
4. Jóel Jóhannsson sjómaður, síðar í Reykjavík, f. 20. febrúar 1911, d. 20. október 1955.
Fósturbarn þeirra var
5. María Konráðsdóttir, síðar húsfreyja í Biskupstungum og Hveragerði, f. 9. september 1916, d. 16. mars 2003.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.