Guðmundur Þorsteinsson (Landlyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Þorsteinsson frá Landlyst, járnbrautarstarfsmaður í Utah fæddist 8. október 1867 í Sjólyst og lést 13. mars 1933 í Spanish Fork í Utah.
Foreldrar hans voru Þorsteinn Jónsson héraðslæknir, f. 17. nóvember 1840, d. 13. ágúst 1908, og kona hans Matthildur Magnúsdóttir húsfreyja, f. 6. janúar 1833, d. 5. mars 1904.

Börn Þorsteins og Matthildar voru:
1. Margrét húsfreyja, f. 2. janúar 1866 í Sjólyst, d. 5. september 1931 í Los Angeles, gift Jóhann Morten Peter Bjarnasen. Húsfreyja í Eyjum, síðar í Las Vegas og í Hollywood.
2. Guðmundur járnbrautarstarfsmaður í Utah, f. 8. október 1867 í Sjólyst, d. 13. mars 1933 í Spanish Fork í Utah.
3. Jón verslunarmaður í Reykjavík, f. 30. október 1868 í Sjólyst, d. 24. maí 1931, kvæntur Guðrúnu Johansdóttur Heilmann.
4. Ingibjörg, f. 16. júlí 1870 í Landlyst, d. 14. desember 1871.
5. Magnús prestur á Mosfelli í Mosfellssveit, f. 3. janúar 1872 í Landlyst, d. 4. júlí 1922, kvæntur Valgerði Gísladóttur.
6. Guðrún húsfreyja í Valhöll, f. 25. desember 1873, d. 24. ágúst 1928, gift Ágústi Gíslasyni.

Guðmundur var með foreldrum sínum í Sjólyst, síðan um árabil í Landlyst.
Hann fluttist til Utah 1888. Þar var hann járnbrautarstarfsmaður.
Hann kvæntist Ágústínu Einarsdóttur frá Helgahjalli, en hún hafði flust vestur 1880.

I. Kona Guðmundar var Ágústína Einarsdóttur frá Helgahjalli, f. 9. ágúst 1878 í Helgahjalli, d. 3. maí 1957 í Spanish Fork í Utah.
Börn þeirra:
1. Earl Theodór, f. 1899.
2. Goodman Thorstein, f. 1900.
3. Altin Einar, f. 1902.
4. Mathilda Alice, f. 1907.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga 2000.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Saga Íslendinga í Vesturheimi I-V. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, Tryggvi J. Oleson. Winnipeg: Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi: Menningarsjóður 1940-1953.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.