Guðlaugur Diðriksson (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaugur Diðriksson vinnumaður á Miðhúsum fæddist 25. júní 1838 og lést 14. febrúar 1860.
Faðir hans var Diðrik bóndi í Hólmi í A-Landeyjum, f. 16. september 1794 á Önundarstöðum þar, d. 11. júlí 1841 í Hólmi, Jónsson bónda í Gularáshjáleigu þar, f. 1765 á Önundarstöðum, d. 21. október 1827, Diðrikssonar bónda á Önundarstöðum, f. 1729, d. 7. nóvember 1802 á Önundarstöðum, Bjarnasonar, og konu Diðriks, Margrétar húsfreyju, f. 1731 í Kúfhóli þar, d. 2. nóvember 1820 í Fagurhóli þar, Einarsdóttur.
Móðir Diðriks og kona Jóns Diðrikssonar var Ingibjörg húsfreyja, f. 1767, d. 31. júlí 1816 í Gularáshjáleigu, Magnúsdóttir bónda í Haukadal á Rangárvöllum, f. 1725, d. 12. maí 1804, Jónssonar, og konu Magnúsar, Helgu húsfreyju, f. 1725, d. 22. ágúst 1785, Erlendsdóttur.

Móðir Guðlaugs Diðrikssonar og kona Diðriks var Sigríður Árnadóttir húsfreyja, síðast í Stakkagerði, f. 25. ágúst 1798 í Syðri-Hól u. Eyjafjöllum, d. 17. desember 1892.

Systkini Guðlaugs Diðrikssonar í Eyjum voru:
1. Sigurður Diðriksson vinnumaður á Kirkjubæ 1843, f. 10. apríl 1826.
2. Þórður Diðriksson mormóni, var síðar brikkleggjari í Spanish Fork í Utah, f. 25. mars 1828, d. 9. september 1894.
3. Árni Diðriksson bóndi í Stakkagerði, f. 18. júlí 1830, d. 28. júní 1903.
4. Guðmundur Diðriksson fósturbarn á Vesturhúsum, f. 23. febrúar 1834, d. 25. maí 1848.
5. Magnús Diðriksson vinnumaður í Stakkagerði, f. 1. apríl 1837, d. í mars 1863.
6. Hálfbróðir Guðlaugs Diðrikssonar og bræðra hans, sonur Sigríðar með síðari manni sínum, var Guðmundur Einarsson tómthúsmaður í Sjólyst, f. 31. október 1848, d. 23. ágúst 1882.

Diðrik faðir Guðlaugs dó, er hann var 3 ára. Hann fór í fóstur á því ári, var kominn að Miðhúsum 1841, 3 ára tökubarn þar hjá Sesselju Helgadóttur og Sigurði Jónssyni. Þar dvaldi hann síðan, titlaður fósturbarn þeirra 1849, fóstursonur 1854.
Hann var vinnumaður á Miðhúsum, er hann lést úr „ginklofa“, stífkrampa, 22 ára.
Guðlaugur var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.