Guðbjörg Jónsdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

'Guðbjörg Jónsdóttir bústýra í Norðurgarði fæddist um 1857 í Brautarholtssókn á Kjalarnesi og lést 21. febrúar 1945.

Guðbjörg var í Moldatungu í Árbæjarsókn 1870, vinnukona í Kollabæ í Fljótshlíð 1880.
Hún fluttist að Norðurgarði frá Kollabæ 1885 og var bústýra, síðar kona Magnúsar Gíslasonar bónda.
Þau eignuðust Ólaf Kristinn 1887 og fóru frá Norðurgarði til Vesturheims 1892.

I. Maður Guðbjargar, (29. júlí 1892), var Magnús Gíslason bóndi í Norðurgarði, f. 8. janúar 1842, d. 11. júlí 1929.
Barn þeirra var
1. Ólafur Kristinn Magnússon, f. 15. mars 1887, d. 18. maí 1904. Hann fór til Vesturheims frá Norðurgarði 1892.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.