Guðbjörg Ingvarsdóttir (Langholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Ingvarsdóttir húsfreyja í Langholti (1920) og víðar, síðar í Reykjavík, fæddist að Hellnahóli undir Eyjafjöllum 28. júní 1897 og lést 2. september 1987.

Faðir hennar var Ingvar bóndi á Hellnahóli undir Eyjafjöllum, f. 12. október 1864, d. 1910, skömmu eftir flutning til Eyja, jarðsettur í Eyjum, Einarsson vinnumanns í Snotru í Landeyjum 1860, vinnumanns í Kirkjuvogi í Höfnum, Gull. 1870, f. 1843, d. 7. ágúst 1877, Sigurðssonar bónda í Voðmúlastaða-Miðhjáleigu í A-Landeyjum 1817-1838, f. 20. mars 1792 í Efrihól undir Eyjafjöllum, d. 14. júní 1864 á Núpi þar, Sighvatssonar, og síðari konu Sigurðar, (30. október 1828, skildu), Guðrúnar húsfreyju, f. 1807, d. 18. janúar 1874, Guðmundsdóttur.
Sigurður og Guðrún voru einnig foreldrar Sighhvats á Vilborgarstöðum.
Móðir Ingvars á Hellnahóli og barnsmóðir Einars var Sólrún, síðar húsfreyja á Hellnahóli, f. 7. september 1839, d. 5. maí 1921, Þorvaldsdóttir (Sólrún varð síðari kona Þórðar bónda á Hellnahóli, bróður Einars barnsföður síns); Þorvaldur var bóndi á Krossi II (Krosshjáleigu) í A-Landeyjum 1834-1861, f. 1801 í Skíðbakkahjáleigu, d. 30. maí 1871 í Tjarnarkoti þar, Magnússon, en kona Þorvaldar (15. október 1833) og móðir Sólrúnar var Ingibjörg húsfreyja, f. 11. maí 1812, d. 17. maí 1870, Bjarnadóttir.

Móðir Guðbjargar og kona (1890) Ingvars á Hellnahóli var Ástríður húsfreyja, bjó í Víðidal 1930, f. 25. júlí 1859, d. 10. júlí 1937, Sigurðardóttir bónda á Borgareyrum og Hvammi undir Eyjafjöllum, f. 9. mars 1825, d. 12. júlí 1887, Sigurðssonar bónda í Voðmúlastaða-Miðhjáleigu 1817-1838, f. 1792, d. 1864 (sami og faðir Einars föður Ingvars), Sighvatssonar, og fyrri konu Sigurðar (1. október 1814), Ragnhildar húsfreyju, f. 21. júlí 1794, d. 23. janúar 1828, Árnadóttur.
Móðir Ástríðar og fyrri kona Sigurðar á Borgareyrum var Dýrfinna húsfreyja á Borgareyrum og í Hvammi, f. 13. ágúst 1830 í Krýsuvíkursókn, d. 2. maí 1878, Kolbeinsdóttir frá Litlakoti í Hvalsnessókn, bónda í Suðurkoti við Krýsuvík, en vinnumanni í Ólafshúsum 1855, f. 20. júlí 1795, d. 8. janúar 1860, Jónssonar, og konu Kolbeins, Vigdísar húsfreyju í Suðurkoti 1835, f. 16. júlí 1788, d. 29. ágúst 1839, Sigurðardóttur.

Guðbjörg fluttist til Eyja árið 1909, var vinnukona í Bræðraborg 1910. Hún var húsfreyja í Langholti 1920, á Heiðarhóli við Brekastíg 16 1927, á Bárustíg 15, Baðhúsinu 1930, í Hljómskálanum við Hvítingaveg 10 1934. Þau fluttu til Akureyrar 1935, að Látrum á Látraströnd í Eyjafirði 1940, bjuggu þar 1940-1943, en fluttu þá til Reykjavíkur og bjuggu þar síðast. Þau stóðu að uppbyggingu Hlíðardalsskóla í Ölfusi, Sveinbjörn að smíði hans og Guðbjörg var þar ráðskona um skeið.
Flest systkina hennar settust að í Eyjum (sjá mynd).

ctr


Foreldrar Guðbjargar Ingvarsdóttur, hjónin Ingvar Einarsson og Ástríður Sigurðardóttir.


ctr


Sex af börnum hjónanna á Hellnahóli, Ingvars og Ástríðar.

Aftari röð frá vinstri:
1. Sólrún húsfreyja í Eyjum, f. 9. okt. 1891, d. 21. ágúst 1974, gift Sveini Sigurhanssyni vélstjóra og múrara, f. 21. júní 1892, d. 6. desember 1963.
2. Guðbjörg Ingvarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 28. júní 1897, d. 2. september 1987, gift Sveinbirni Einarssyni trésmið, f. 12. júní 1890, d. 13. ágúst 1984.
3. Dýrfinna húsfreyja á Kirkjubæ, f. 7. júlí 1900, d. 1. desember 1986, gift Sigurði Gottskálkssyni frá Hraungerði í Eyjum, verkamanni og bónda á Kirkjubæ, f. 23. ágúst 1894, d. 5. apríl 1955.
4. Jóhanna húsfreyja í Neskaupstað 1930, f. 13. okt. 1901, d. 2. nóvember 1937. Gift Guðna Sveinssyni sjómanni á Norðfirði, f. 6. maí 1894, d. 15. nóvember 1975.
Fremri röð frá vinstri:
1. Einar Ingvarsson sjómaður í Eyjum, f. 9. okt. 1891, tvíburi við Sólrúnu, d. 18. maí 1968, kvæntur Guðrúnu Eyjólfsdóttur húsfreyju, f. 4. febr. 1898, d. 29. nóvember 1980.
2. Ágúst Sigurður Ingvarsson verkamaður, f. 27. júní 1890, d. 25. nóvember 1963.
Sjá nokkra afkomendur í Bliki 1960: Hjónin frá Hellnahóli.
Barn Ingvars Einarssonar og Ragnhildar Þórðardóttur:
7. Guðni Ingvarsson matsveinn, bryti, f. 17. júlí 1901, d. 5. október 1975.

Maður Guðbjargar var Sveinbjörn Einarsson frá Þorlaugargerði, húsasmíðameistari, f. 12. júní 1890, d. 13. ágúst 1984.
Börn Guðbjargar og Sveinbjarnar:
1. Fanney Sveinbjörnsdóttir, f. 12. september 1918, d. 29. desember 1990.
2. Guðmundur Ingvi Sveinbjörnsson, f. 30. janúar 1922, d. 10. ágúst 1943.
3. Daníel Sveinbjörnsson, f. 11. febrúar 1925, d. 24. nóvember 1930.
4. Marta Sveinbjörnsdóttir, f. 14. nóvember 1927, d. 2. janúar 2003.
5. Svava Sveinbjörnsdóttir, f. 3. janúar 1934.
6. Jenný Sveinbjörnsdóttir, f. 2. júlí 1935, d. 29. apríl 2004.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.