Guðbjörg Þórðardóttir (Fífilgötu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðbjörg Þórðardóttir frá Dal.
Guðbjörg og Bernótus Þórarinsson.

Guðbjörg Þórðardóttir húsfreyja fæddist 31. ágúst 1894 og lést 4. desember 1984.
Faðir hennar var Þórður húsmaður á Tjörnum undir Eyjafjöllum, í Ámundakoti í Fljótshlíð og á Kirkjulandi í A-Landeyjum, f. 20. ágúst 1853, d. 21. október 1901, Loftsson bónda á Tjörnum þar, f. 13. ágúst 1822, d. 21. desember 1912, Guðmundssonar bónda í Strandarhjáleigu, f. 1787, d. 23. ágúst 1835, Halldórssonar, og konu Guðmundar, Þórunnar húsfreyju, f. 1798, d. 17. september 1843, Loftsdóttur.
Móðir Þórðar og kona Lofts á Tjörnum var Vilborg húsfreyja, f. 5. ágúst 1823, d. 12. júní 1890, Þórðardóttir bónda í Seljalandsseli, skírður 31. ágúst 1792, d. 3. júní 1856, Brynjólfssonar, og konu Þórðar í Seljalandsseli, Kristínar húsfreyju, skírð 3. desember 1779, d. 7. ágúst 1843, Erlendsdóttur.

Móðir Guðbjargar og kona Þórðar Loftssonar (1. janúar 1880) var Kristólína frá Miðey í A-Landeyjum, f. 23. október 1859 þar, flutti að Dal í Eyjum 1903 og lést 12. mars 1937, Gísladóttir bónda á Miðhúsum í Stórólfshvolssókn, f. 2. október 1829, d. 9. júlí 1897, Böðvarssonar bónda í Háakoti í Fljótshlíð, skírður 4. október 1793, d. 14. júlí 1836, Guðmundssonar bónda í Dalbæ í Hreppum, f. 1763, Böðvarssonar, og konu Guðmundar í Dalbæ, Guðrúnar húsfreyju, f. 1762, Sigurðardóttur.
Móðir Gísla á Miðhúsum og kona Böðvars í Háakoti var Guðrún húsfreyja þar 1835, f. 19. febrúar 1795, d. 3. september 1872, Gísladóttir bónda í Ormskoti í Fljótshlíð 1801, f. 1747, Jónssonar, og konu Gísla, Ragnhildar húsfreyju, f. 1757, Pálsdóttur.
Móðir Kristólínu í Dal og kona Gísla á Miðhúsum var Elín húsfreyja, f. 30. apríl 1836, d. 18. desember 1916, Jónsdóttir bónda í Miðey, f. 7. júlí 1792, d. 5. janúar 1837, Jónssonar bónda á Ljótarstöðum í A-Landeyjum, f. 1766, d. 2. apríl 1842, Þorkelssonar, og konu Jóns á Ljótarstöðum, Margrétar húsfreyju, f. 1765, d. 18. júlí 1834, Hreinsdóttur.

Guðbjörg var á Kirkjulandi í A-Landeyjum 1901, vinnukona í Stakkagerði-Vestra 1910.
Maður Guðbjargar var Árni Þórarinsson hafnsögumaður.
Þau Guðbjörg og Árni giftst 23. desember 1921.
Hjónin byrjuðu búskap sinn í húsinu Reyni við Bárugötu. Þá fluttu þau að Stakkagerði-Vestra og bjuggu þar um skeið, en byggðu þá tveggja hæða hús við Fífilgötu 3 og áttu þar heimili þar til þau fluttu frá Eyjum árið 1948. Þau settust þá að í Ytri-Njarðvík og voru þar í um 20 ár, fluttu þá í Kópavog og áttu þar heima upp frá því.
Þau voru barnlaus en fóstruðu frænda Guðbjargar, Bernótus Þórarinsson Bernótussonar Sigurðssonar, f. 8. desember 1929, d. 14. júní 1992.
Börn Kristólínu Gísladóttur og Þórðar Loftssonar í Eyjum voru:
1. Magnús Þórðarson formaður í Dal kvæntur Ingibjörgu Bersteinsdóttur.
2. Jóhanna Guðrún Þórðardóttir húsfreyja í Vestra Stakkagerði, f. 2. apríl 1882, d. 3. september 1923, kona Bernótusar Sigurðssonar formanns í Stakkagerði.
3. Kristín Þórðardóttir á Borg, húsfreyja, f. 29. febrúar 1888, d. 14. mars 1948, kona Sigurjóns Högnasonar skrifstofustjóra.
4. Ágúst Þórðarson fiskimatsmaður á Aðalbóli, f. 22. ágúst 1893, d. 26. ágúst 1977, sem kvæntur var Viktoríu Guðmundsdóttur húsfreyju á Aðalbóli og
5. Guðbjörg Þórðardóttir húsfreyja, fædd 31. ágúst 1894, dáin 4. desember 1984, kona Árna Þórarinssonar hafnsögumanns á Oddsstöðum.
6. Gísli Þórðarson vélstjóri í Dal, fæddur 10. júní 1896, fórst með vélbátnum 13. febrúar 1920. Kona hans var Rannveig Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 20. apríl 1895, d. 19. október 1970, síðar kona Viggós Björnssonar bankastjóra.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.