Grænahlíð 24

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Grunnmynd

Hús Þorsteins Matthíassonar í Vinaminni og Guðnýjar Helgu Örvar. Lóðarleigusamningur var samþykktur í bæjarstjórn 16. október 1968 og undirritaður 17. sama mánaðar. Steini byrjaði að byggja í Heiðartúninu í maí 1962. Skömmu síðar kynntust þau Guðný Helga. Fluttu inn sumarið 1970 með dæturnar Þorgerði Helgu fædda 16. nóvember 1964 og Elísabetu Guðmundu 3. ágúst 1967. Matthías Jónsson faðir Þorsteins flutti líka inn með þeim. Matthildur Unnur fæddist 26. febrúar 1971 og bættist þá í hópinn.

Húsið fór undir hraun í gosinu 1973.


Heimildir