Garðar Sveinsson (Arnarstapa)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Garðar Sveinsson frá Arnarstapa, skrifstofustjóri í Hafnarfirði fæddist 11. mars 1931 í Hafnarfirði og lést 8. janúar 2016.
Foreldrar hans voru Sveinn Guðmundsson kaupmaður, forstjóri, f. 17. apríl 1905 á Grænanesi í Norðfirði, d. 16. ágúst 1981 í Reykjavík, og kona hans Unnur Pálsdóttir húsfreyja, f. 22. júní 1905 á Hofsósi, d. 14. október 1981 í Reykjavík.

Börn Unnar og Sveins:
1. Garðar Sveinsson skrifstofustjóri í Hafnarfirði, f. 11. mars 1931, d. 8. janúar 2016. Kona hans Guðný Lára Ágústsdóttir.
2. Ásdís Sveinsdóttir ritari, f. 16. júní 1932.
3. Aðalheiður Sveinsdóttir býr í Noregi, f. 28. janúar 1936.

Garðar var með foreldrum sínum í æsku. Hann varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1948.
Hann stundaði verkamannavinnu, varð síðan bókari í Eyjum, síðar aðalbókari og skrifstofustjóri í Hafnarfirði.
Þau Lára giftu sig 1954, eignuðust þrjú börn og kjörson. Þau bjuggu á Sóleyjargötu 1 og síðar á Fjólugötu 8 í Eyjum.
Þau fluttu í Hafnarfjörð, bjuggu þar síðast á Herjólfsgötu 38.
Garðar lést 2016.

I. Kona Garðars, (22. júní 1954), er Guðný Lára Ágústsdóttir frá Fáskrúðsfirði, húsfreyja, f. þar 20. nóvember 1931.
Börn þeirra:
1. Unnur Garðarsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 27. febrúar 1954 á Selfossi. Fyrrum maður hennar Egill Ómar Grettisson. Maður hennar Kristinn Vilhjálmur Daníelsson.
2. Gústav Garðarsson sölufulltrúi í Hafnarfirði, f. 4. apríl 1956 í Eyjum. Fyrrum kona hans Guðlaug Katrín Þórðardóttir. Kona hans Anna Kristín Jóhannesdóttir.
3. Sigurlaug Garðarsdóttir leiðbeinandi á leikskóla í Hafnarfirði, f. 3. maí 1962 í Eyjum. Maður hennar Bjarnfreður Ármannsson.
Kjörsonur þeirra, sonur Unnar dóttur þeirra:
4. Sveinn Garðar Garðarsson vélvirki í Hafnarfirði, f. 5. mars 1970 í Reykjavík. Sambúðarkona hans Þorgerður Guðrún Jónsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.