Friðrik Bjarnasen (Garðinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Friðrik Bjarnasen)
Fara í flakk Fara í leit
Friðrik Bjarnasen.

Frederik Bjarnasen, (líka Friðrik), frá Garðinum, trésmíðameistari og verslunarmaður í Reykjavík fæddist 21. nóvember 1865 og lést 4. september 1944.
Foreldrar hans voru Jóhann Pétur Benedikt Bjarnasen verslunarstjóri, f. 15. nóvember 1834, d. 1. maí 1869, og kona hans Johanne Caroline Hansdóttir Rassmussen, f. 2. september 1835, d. 25. febrúar 1920.

Börn Jóhanns Péturs Bjarnasen og Johanne Caroline í Eyjum voru:
1. Juliane Sigríður Margrét Bjarnasen húsfreyja í Reykjavík, f. 7. október 1859, d. 1941.
2. Nikolai Carl Frederik Bjarnasen kaupmaður og skipaafgreiðslumaður í Reykjavík, f. 22. desember 1860, d. 12. desember 1948.
3. Jóhann Morten Peter Bjarnasen verslunarstjóri í Garðinum, f. 8. apríl 1862, síðar í Bandaríkjunum.
4. Anton Gísli Emil Bjarnasen útvegsbóndi verslunarstjóri í Garðinum, kaupmaður í Dagsbrún, f. 5. desember 1863, d. 22. mars 1916.
5. Frederik Bjarnasen smiður og verslunarmaður í Reykjaví, f. 21. nóvember 1865, d. 4. september 1944.
6. Carl Anders Bjarnasen verslunarmaður í Reykjavík, f. 4. febrúar 1868, d. 1903.

Friðrik var með foreldrum sínum í bernsku, en faðir hans lést, er hann var á 4. árinu. Móðir hans giftist Jes Nicolai Thomsen verslunarstjóra í Godthaab 1870 og dvaldi Friðrik með þeim til 1883, en þá fluttist hann til Reykjavíkur með systur sinni Julíane.
Hann lærði trésmíðar og var snikkari á Vesturgötu 11 1890, var síðar verslunarmaður hjá Jes Ziemsen. Hann bjó á Tjarnargötu 38 1930.

Kona Friðriks var Nikolína Friðrikka Petersen húsfreyja, f. 7. júlí 1868 í Hafnarfirði, d. 4. september 1944.
Barn þeirra hér:
1. María Kristín húsfreyja í Reykjavík, f. 30. ágúst 1893, d. 25. ágúst 1969.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.