Eva Valdimarsdóttir (Bræðraborg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórða Eva Valdimarsdóttir frá Bræðraborg, verkakona, húsfreyja á Hamri fæddist 20. desember 1927 í Litlabæ og lést 29. september 1989.
Foreldrar hennar voru Valdimar Ástgeirsson málari frá Litlabæ, f. 19. september 1898, d. 26. júlí 1978, og kona hans Þórodda Vigdís Loftsdóttir frá Uppsölum, húsfreyja, f. 12. ágúst 1905, d. 29. júlí 1986.
Börn Þóroddu og Valdimars voru:
1. Þórunn Sigríður Valdimarsdóttir, f. 12. janúar 1926 í Litlabæ, d. 8. júlí 2012.
2. Þórða Eva Valdimarsdóttir, f. 20. desember 1927, d. 29. september 1989.
3. Jónína Kristín Valdimarsdóttir, f. 5. júlí 1936.
4. Þráinn Valdimarsson, f. 3. júní 1946, d. 5. febrúar 1973.

Eva var með foreldrum sínum í æsku, í Litlabæ 1930 og 1934, á Sæbóli, Strandvegi 50 1940, en komin með þeim í Bræðraborg 1945.
Eva var verkakona við giftingu 1952.
Þau Magnús giftu sig 1952, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í Bræðraborg við fæðingu Ágústu 1953, Vals 1954 og Hugrúnar 1958. Þau voru komin að Hamri 1961 og bjuggu þar síðan.
Eva lést 1989 og Magnús 2002.

I. Maður Evu, (22. nóvember 1952), var Magnús Magnússon sjómaður, vélstjóri, stýrimaður frá Sjónarhól, f. 5. júlí 1927, d. 14. september 2002.
Börn þeirra:
1. Ágústa Magnúsdóttir húsfreyja, f. 27. febrúar 1953. Maður hennar er Viktor Hjartarson.
2. Valur Magnússon, f. 13. febrúar 1954 í Bræðraborg. Kona hans er Védís Gunnarsdóttir.
3. Hugrún Magnúsdóttir húsfreyja, bréfberi, f. 10. mars 1958. Maður hennar er Haraldur Sverrisson.
4. Magnús Þór Magnússon, f. 5. janúar 1961 á Hamri. Sambýliskona hans var Anna Ísfold Kolbeinsdóttir, látin.
5. Einar Magnússon, f. 13. mars 1962 á Hamri. Kona hans er Linda Sigurbjörg Halldórsdóttir.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.