Engilbert Þorvaldsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Engilbert Þorvaldsson.

Engilbert Þorvaldsson sjómaður, fiskverkamaður, verkstjóri fæddist 11. október 1906 í Minniborg u. Eyjafjöllum og lést 26. september 2004.
Foreldrar hans voru Þorvaldur Ingvarsson bóndi í Ystabæli og Raufarfelli, f. 9. ágúst 1885, d. 10. febrúar 1966, og kona hans Guðbjörg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 24. maí 1885, d. 27. júlí 1977.

Systir Engilberts í Eyjum var
Þorsteina Margrét Þorvaldsdóttir húsfreyja á Staðarfelli, f. 21. maí 1911, d. 15. mars 1976. Maður hennar Hermann Jónsson.

Engilbert var með foreldrum sínum í æsku, en hann hélt til Eyja 17 ára gamall til vertíðarstarfa og flutti þangað 1943.
Hann var á Brekku 1940.
Hann stundaði sjómennsku um tuttugu ára skeið, síðan vann hann við fiskiðnað í Fiskiðjunni fram undir áttrætt.
Þau Lára giftu sig 1943, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Heiðarvegi 28, Eyjarhólum við Hásteinsveg 20 1945, Hásteinsvegi 5 1950, í Stakkagerði-vestra og á Heiðarvegi 57 við Gos. Hann dvaldi að síðustu í Hraunbúðum.
Lára lést 1997 og Engilbert 2004.

I. Kona Engilberts var Lára Bogadóttir frá Flatey á Breiðafirði, húsfreyja, f. 10. desember 1910, d. 13. nóvember 1997.
Börn þeirra:
1. Sigurborg Ólöf Engilbertsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 9. júlí 1944. Maður hennar Eiður Sævar Marinósson, látinn.
2. Guðbjörg Engilbertsdóttir húsfreyja, f. 31. desember 1950. Maður hennar Jóhann Jónsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 2. október 2004. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.