Emma Jóna Jóhannsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Emma Jóna Jóhannsdóttir frá Brekku, húsfreyja fæddist þar 8. desember 1917 og lést 19. mars 1989.
Foreldrar hennar voru Jóhann Jónsson skipstjóri, húsasmiður frá Túni, f. 20. maí 1876, d. 13. janúar 1931, og kona hans Kristín Árnadóttir frá Jómsborg, húsfreyja, f. 17. september 1878 í Mið-Mörk u. V-Eyjafjöllum, d. 20. september 1926.

Börn Kristínar og Jóhanns voru:
1. Andvana fætt sveinbarn 7. nóvember 1900 í Túni.
2. Guðrún Hrefna Jóhannsdóttir, f. 11. apríl 1902 á Brekku, d. 14. desember 1945.
3. Þórsteina Jóhannsdóttir, f. 22. janúar 1904 á Brekku, d. 23. nóvember 1991.
4. Engilbert Jóhannsson, f. 26. júlí 1905 á Brekku, d. 8. janúar 1990.
5. Karl Jóhannsson, f. 29 nóvember 1906 á Brekku, d. 4. febrúar 1998.
6. Árný Svava Jóhannsdóttir, f. 23. maí 1908 á Brekku, d. 20. desember 1908.
7. Friðþjófur Jóhannsson, f. 21. maí 1910 á Brekku, d. 10. febrúar 1930.
8. Hulda Jóhannsdóttir, f. 19. október 1911 á Brekku, d. 17. september 1993.
9. Auróra Alda Jóhannsdóttir, f. 6. maí 1913, d. 11. maí 1995.
10. Bjarni Baldur Jóhannsson, f. 23. mars 1915, d. 4. apríl 1915.
11. Emma Jóna Jóhannsdóttir, f. 8. desember 1917, d. 19. mars 1989.
12. Steingerður Jóhannsdóttir, f. 27. júlí 1919, d. 21. október 2005.

Emma var með foreldrum sínum í fyrstu, en móðir hennar lést 1926. Hún var með föður sínum á Brekku 1930, en var síðan send í fóstur upp á land, var þar nokkur ár.
Þau Sveinn giftu sig 1940, bjuggu í Bólstaðarhlíð. Þau skildu barnlaus, en Birgir Rútur Pálsson var skráður fóstursonur þeirra á giftingarári, en kominn til foreldra sinna í Þingholti 1945.

Emma var tvígift.
I. Maður Emmu, (12. október 1940, skildu), var Sveinn Matthíasson frá Byggðarenda, sjómaður, útgerðarmaður, f. 14. ágúst 1918, d. 15. nóvember 1998.
Þau voru barnlaus.

II. William Clark, skoskur maður.
Barn þeirra:
1. Michael Clark..


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ættarmót afkomenda hjónanna Kristínar og Jóhanns frá Brekku. Rit.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.