Emilie Ingibjörg Ringsted

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Emilie Ingibjörg Ringsted frá Pétursborg fæddist 8. apríl 1842 og lést 17. ágúst 1916 í Khöfn.
Foreldrar hennar voru Niels Stephan Ringsted verslunarstjóri við Godthaabsverslun, f. 1805, d. 6. september 1853, og síðari kona hans Helga Jónsdóttir húsfreyja, f. 1801.

Emilie Ingibjög var með fjölskyldu sinni í PétursborgSteinshúsi 1842 og 1843.
Hún fór með foreldrum sínum til Danmerkur 1844, bjó með þeim í Prinsensgade 377 1845, fluttist þaðan með foreldrum sínum til Reykjavíkur á því ári. Þau voru þar í Knudtzonshúsi síðla árs 1845.
Þau komu aftur til Eyja 1846 þar sem faðir hennar stýrði Godthaabsverslun til 1947, en þá fluttist fjölskyldan alfarin til Danmerkur.
Þau bjuggu við Nörrebro 45 í Kaupmannahöfn 1850.
Faðir hennar lést 1853.
Hún giftist 1892 óþekktum (Reimerstrøm/Rimmerstrom/Runnerstrom). Hún bjó með Rebekku systur sinni 1906 og 1911, ekkja.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.