Elísabet Ólafsdóttir (Steinholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Elísabet Ólafsdóttir.

Elísabet Ólafsdóttir frá Steinholti, húsfreyja, verkakona fæddist 15. apríl 1945 á Lindargötu 1 á Siglufirði og lést 2. júní 2008 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Ólafur Sölvi Bjarnason síldarmatsmaður, síðar í Eyjum, f. 10. ágúst 1906 í Fellssókn í Skagafirði, d. 7. maí 1958, og Guðmunda Sólveig Jóhannsdóttir húsfreyja, síðar í Eyjum, f. 26. ágúst 1906 í Ártúni í Hofssókn í Skagafirði, d. 10. febrúar 1982.

Börn Guðmundu og Ólafs:
1. Sigurveig Margrét Ólafsdóttir húsfreyja, f. 14. ágúst 1929 á Lindargötu 8 á Siglufirði, d. 5. júní 1995. Maður hennar Kristján Guðni Sigurjónsson.
2. Bjarni Ólafsson verkamaður, verkstjóri, slippstjóri, f. 18. október 1932 á Lindargötu 8 á Siglufirði, síðast í Keflavík, d. 23. febrúar 1991. Kona hans Erla Marinósdóttir Olsen.
3. Jóhann Guðmundur Ólafsson verkamaður, verkstjóri, f. 15. apríl 1935 á Lindargötu 8 á Siglufirði. Kona hans Guðrún Steinsdóttir.
4. Andvana drengur, f. 18. mars 1941.
5. Elísabet Ólafsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 15. apríl 1945 á Lindargötu 1 á Siglufirði, d. 2. maí 2008. Maður hennar var Þorkell Rúnar Sigurjónsson.
Barn Guðmundu:
6. Fanney G. Jónsdóttir (Guðrún Fanney við skírn), húsfreyja í Borgarnesi, matráðskona, f. 23. mars 1927 á Siglufirði, d. 5. maí 2005. Maður hennar Hörður Jóhannesson.

Elísabet var með foreldrum sínum í æsku, á Siglufirði til 1951 og í Steinholti í Eyjum.
Hún vann snemma verkakvennastörf í fiskiðnaði hjá Vinnslustöðinni.
Þau Þorkell Rúnar bjuggu saman frá 1964, eignuðust þrjú börn.
Þau bjuggu m.a. á Vallargötu 18 og Hásteinsvegi 7 til Goss, bjuggu í Hrauntúni 44 1979, fluttu í Kópavog 1984, þar sem Elínborg vann í fiskiðnaði og við bakstur. Þau snéru til Eyja 1997, og Elínborg hóf að nýju störf hjá Vinnslustöðinni og vann þar til 2007. Þau bjuggu síðast á Kirkjuvegi 82.
Hún lést 2008. Þorkell Rúnar flutti til Reykjavíkur og bjó þar síðast. Hann lést 2017.

I. Maður Elísabetar, (10. júlí 2004), var Þorkell Rúnar Sigurjónsson húsasmíðameistari, f. 28. október 1942, d. 20. janúar 2017.
Börn þeirra:
1. Sigríður Þóranna Þorkelsdóttir húsfreyja, f. 11. júní 1965.
2. Sigurjón Þorkelsson, f. 9. apríl 1967.
3. Ólafur Helgi Þorkelsson, f. 19. desember 1980.
Barn Elísabetar, ófeðrað:
4. Sveinn, f. 9. febrúar 1964, d. 10. febrúar 1964.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 7. júní 2008. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.