Elín Dóra Halldórsdóttir (viðskiptastjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Elín Dóra Halldórsdóttir húsfreyja, viðskiptastjóri fæddist 12. desember 1975 í Eyjum.
Foreldrar hennar: Halldór Guðbjarnason viðskiptafræðingur, fyrrv. bankastjóri og fyrrv. forstjóri, f. 20. október 1946 á Ísafirði, og kona hans Steinunn Brynjúlfsdóttir húsfreyja, lífeindafræðingur, f. 30. september 1948, d. 19. ágúst 2008.

Börn Steinunnar og Halldórs:
1. Lilja Dóra Halldórsdóttir húsfreyja, lögfræðingur, MBA, forstjóri, f. 4. desember 1967. Maður hennar er Jónas Fr. Jónsson.
2. Elín Dóra Halldórsdóttir húsfreyja, BA-sálfræðingur, MSc í fjármálum fyrirtækja, viðskiptastjóri, f. 12. desember 1975. Maður hennar er Atli Knútsson.
Kjörbarn hjónanna:
3. Brynjúlfur Jónatansson íþróttafræðingur, verslunarmaður, leiðsögumaður, f. 1. janúar 1977. Hann er sonur Jónatans Brynjúlfssonar rafvirkjameistara og konu hans Árnýjar Sigríðar Baldvinsdóttur húsfreyja, f. 29. nóvember 1955, d. 19. maí 1979.

Elín Dóra var með foreldrum sínum í æsku, bjó með þeim á Illugagötu 41, fluttist með þeim í Garðabæ 1981 og hefur búið þar.
Hún nam sálarfræði og síðar fjármál fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík, lauk mastersprófi í greininni.
Hún er nú viðskiptastjóri einkabankaþjónustu Landsbanka Íslands.
Þau Atli giftu sig 2002, eiga tvö börn.

I. Maður Elínar Dóru, (1. júní 2002), er Atli Knútsson.
Börn þeirra:
1. Halldór Andri Atlason menntaskólanemi, f. 21. nóvember 2000.
2. Valur Björn Atlason, f. 31. október 2005.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.