Elísabet Petersen (Gimli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ásdís Elísabet Petersen frá Gimli, húsfreyja fæddist 19. desember 1902 í Hlíðarhúsi og lést 6. desember 1984.
Foreldrar hennar voru Aage Lauritz Petersen verkfræðingur af dönskum ættum, símstjóri, síðar skattstofufulltrúi í Reykjavík, f. 14. desember 1879, d. 2. mars 1959, og fyrri kona hans Guðbjörg Gísladóttir húsfreyja, síðar á Gimli, f. 25. ágúst 1880 í Hlíðarhúsi, d. 29. nóvember 1969.

Börn Guðbjargar og Aage:
1. Ásdís Elísabet Petersen húsfreyja, f. 19. desember 1902, d. 6. desember 1984.
2. Ágústa Hansína Petersen Forberg húsfreyja, f. 4. janúar 1905, d. 27. október 1987.
3. Gísli Friðrik Petersen læknir, prófessor, f. 21. febr. 1906, d. 18. júlí 1992.
4. Ágúst Ferdinand Petersen listmálari, f. 20. desember 1908, d. 7. nóvember 1990.
Barn Guðbjargar og Sæmundar Jónssonar frá Jómsborg, f. 2. apríl 1888 í Efri-Holtum u. Eyjafjöllum, d. 31. mars 1968.
5. Jón Karl Sæmundsson ljósmyndari í Reykjavík, f. 18. september 1921, d. 30. júní 1993. Kona hans var Sigurlína Árnadóttir.

Börn Aages og síðari konu hans Guðnýjar Magnúsdóttur talsímakonu, húsfreyju, f. 13. ágúst 1898, d. 17. febrúar 1975.
6. Stella Petersen skrifstofumaður, gift í Englandi, f. 30. september 1917 á Símstöðinni.
7. Betsy Petersen, f. 4. nóvember 1918 á Símstöðinni, d. 25. desember 1944.
8. Magnús Petersen verkamaður í Reykjavík, f. 29. október 1920, d. 19. júlí 1992.
9. Gunnar Petersen gullsmiður í Reykjavík, f. 16. janúar 1929, d. 6. október 1980.
Elísabet var með foreldrum sínum í Hlíðarhúsi á fæðingarári sínu, fluttist með þeim til Reykjavíkur. Hún fluttist með þeim til Eyja 1908, fór ,,vinnukona“ til Landeyja 1915, en var komin á Hól til móður sinnar 1916 og þar skráð vinnukona 1917 og 1918.
Hún fluttist með móður sinni og Sæmundi í Valhöll 1919 og að Gimli 1923, var þar 1924 og 1925.
Ásdís Elísabet giftist Lárus Karl Lárusson kaupmanni 1926. Þau bjuggu í Einarshöfn við Kirkjuveg 1927, en farin 1930.
Síðari maður hennar var Baldur Teitsson. Hann lést 1969. Ásdís lést 1984.

I. Fyrri maður Elísabetar (6. nóvember 1926), var Lárus Karl Lárusson kaupmaður, síðar fulltrúi hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, f. 12. júlí 1899 í Ólafsvík, d. 18. júní 1971.

II. Síðari maður Elísabetar var Baldur Teitsson trésmiður, síðast í Reykjavík, f. 27. október 1910, d. 15. mars 1969.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.