Eiríkur Ásbjörnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Emmu-Eiríkur

Eiríkur Valdimar Ásbjörnsson, Urðavegi 41, fæddist 21. maí 1893 á Eyrarbakka og lést 22. nóvember 1977. Hann var kvæntur Ragnheiði Ólafsdóttur í Eiríkshúsi og eignuðust þau þrjú börn.

Eiríkur lauk skipstjóraprófi (30 tonna) í Eyjum 13. desember 1920.
Hann var ungur á skútu hjá Geir Zoëga.
Árið 1919 fluttist Eiríkur til Vestmannaeyja og byrjar hann formennsku tveimur árum síðar á Emmu sem hann keypti nýjan. Formennsku stundaði hann á Emmu fram á fjórða áratuginn. Hann var jafnan kallaður Emmu-Eiríkur, vitaskuld eftir bátnum. Eiríkur verkaði þann fisk sem bátar hans öfluðu en hann átti fiskverkunarhús við Skildingaveg. Eftir formennskuárin stundaði Eiríkur útgerð.

Eiríkur tók mikinn þátt í félagsstörfum útvegsmanna í Vestmannaeyjum og sat hann í stjórnum margra félaga.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.