Einar Sigurfinnsson (eldri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Einar Sigurfinnsson


Einar Sigurfinnsson.
Ragnhildur Guðmundsdóttir, seinni kona Einars Sigurfinnssonar.

Þórhallur Gunnlaugsson símstöðvarstjóri og Einar Sigurfinnsson.

Magnús Kristinn Einar Sigurfinnsson fæddist 14. september 1884 í Háu-Kotey í Meðallandi og lést 17. maí 1979. Foreldrar hans voru Sigurfinnur Sigurðsson og Kristín Guðmundsdóttir. Hann var nefndur eftir látnum móðurbræðrum sínum, Magnúsi Kristni og Einari.

Fyrri kona Einars var Gíslrún Sigurbergsdóttir og áttu þau synina Sigurbjörn og Sigurfinn. Gíslrún lést úr sárum sínum eftir að hafa brennst illa er hús þeirra hjóna brann. Synirnir tveir dvöldust í nokkur ár hjá foreldrum Einars.

Seinni kona Einars var Ragnhildur Guðmundsdóttir. Þau gengu í hjónaband 28. maí 1928, rúmum 15 árum eftir dauða Gíslrúnar. Þau eignuðust einn son, Guðmund. Hann fæddist 19. febrúar 1929.

Einar og Ragnhildur fluttu til Vestmannaeyja árið 1955 og bjuggu fyrst í Heiðartúni en ári seinna keyptu þau Sólvang við Kirkjuveg og bjuggu þar síðan ásamt Guðmundi syni þeirra og konu hans.

Eftir Einar eru frásagnir í Bliki 1960 og 1969.

Myndir

Sjá einnig