Einar Þórðarson (Litlu-Grund)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Einar Þórðarson verkamaður frá Götu í Holtum fæddist 9. júní 1882 og lést 12. febrúar 1925.
Foreldrar hans voru Þórður Einarsson bóndi í Götu, f. 27. apríl 1832 í Stöðulkoti í Þykkvabæ, d. 18. maí 1898 í Bakkakoti og síðari kona, sambýliskona hans Þuríður Jónsdóttir húsfreyja, síðar í Hlaðbæ, en síðast í Reykjavík, f. 8. september 1852 í Drangshlíð u. Eyjafjöllum, d. 31. maí 1935.

Bræður Einars voru:
1. Guðjón Þórðarson útgerðarmaður í Heklu, f. 16. september 1879, d. 10. apríl 1957.
2. Stefán Þórðarson sjómaður, formaður í Hlaðbæ 1910, síðar eftirlitsmaður í Reykjavík, f. 18. apríl 1886, d. 10. nóvember 1968.

Einar var niðursetningur á Stóru-Borg u. Eyjafjöllum 1890, var vinnumaður í Gerðakoti á Miðnesi á Reykjanesi 1901.
Hann var í Hvammi í Fáskrúðsfirði 1903, er hann fluttist að Horni í A-Skaft. Þar var Ingunn og ól Ásgeir þar 1907.
Hann var á Strönd í Stöðvarfirði með Ingunni, þegar Óskar Hafsteinn fæddist þar 1908. Þar fæddist Nanna 1910 og var send í fóstur að Garðstöðum í Útskálasókn. Þar var hún nýfædd 1910.
Einar fluttist frá Fáskrúðsfirði að Hvammi í Eyjum 1910, en Ingunn fluttist með Ásgeir og Óskar Hafstein frá Hafranesi í Fáskrúðsfirði að Gjábakka sama ár. Þau bjuggu á Gjábakka 1911, Nýlendu 1912, Kirkjubæ 1914, í París 1916, á Eiðinu 1917 og 1918 og Kristinn Ingi fæddist þar 1918. Þau eignuðust fimm börn í Eyjum.
Ingunn lést á Eiðinu 1918, rúmri viku eftir barnsfæðingu, 32 ára.

Einar bjó með Guðrúnu í Sæmundarhjalli 1918, á Litlu-Grund 1919.
Þau eignuðust Sveinbjörn Þórarinn á Jaðri 1919, bjuggu á Litlu-Grund 1920 með Kristin Inga son Einars, Sveinbjörn Þórarin og Þuríði börn sín. Þuríður dó óskírð og dánardægurs er ekki getið í pr.þj.bók.
Þau eignuðust aðra Þuríði 1922 á Litlu-Grund og Ingunni Eyrúnu 1925, en hún mun hafa dáið ungbarn.
Einar lést 1925 á Sólheimum og Guðrún síðar á því ári á Litlu-Löndum.

I. Kona Einars var Ingunn Jónsdóttir, f. 4. júlí 1885 á Brunnum í Suðursveit, d. 18. júní 1918 á Eiði.
Börn þeirra:
1. Ásgeir Einarsson ráðsmaður á Kálfafellsstað í A-Skaft., síðar verkamaður í Reykjavík, f. 14. febrúar 1907 á Horni í Bjarnanessókn í A-Skaft., d. 23. desember 1983.
2. Óskar Hafsteinn Einarsson, f. 6. september 1908 á Strönd í Stöðvarfirði, d. 27. nóvember 1932. Hann var í fóstri hjá Stefáni föðurbróður sínum á Vilborgarstöðum 1910, hjá Sigurði Jónssyni móðurbróður sínum á Krossalandi í Lóni 1920.
3. Nanna Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 14. janúar 1910 á Strönd í Stöðvarfirði, d. 3. janúar 1997. Hún var alin upp á Skeggjastöðum í Gerðahreppi hjá Guðnýju Gísladóttur og Guðmundi Guðmundssyni skósmið.
4. Guðlaug Lovísa Einarsdóttir, f. 14. janúar 1911 á Gjábakka, síðast í Árbliki í Fáskrúðsfirði, d. 16. maí 1993. Hún var fósturbarn á Kirkjubóli 1920.
5. Helga Einarsdóttir, f. 10. október 1912 á Nýlendu, d. 13. febrúar 1993. Hún var í fóstri á Felli í Breiðdal 1920 hjá Guðlaugu Helgu Þorgrímsdóttur og Árna-Birni Guðmundssyni. Hún bjó síðast á Berufirði.
6. Páll Vídalín Einarsson bifreiðastjóri, f. 20. nóvember 1914 á Kirkjubæ, d. 13. desember 1988. Hann var í fóstri hjá ekkjunni ömmu sinni á Krossalandi í Lóni 1920, bjó síðast á Höfn við Hornafjörð.
7. Svanhvít Kristín Einarsdóttir, f. 18. desember 1916 í París, d. 20. maí 1934. Hún var fóstruð á Heklu hjá Guðjóni föðurbróður sínum og konu hans Valgerði Þorvaldsdóttur, var vinnukona hjá Sigurði Gunnarssyni og Sigríði Geirsdóttur á Heimagötu 25 1930, bjó síðast á Heklu.
8. Kristinn Ingi Einarsson, f. 10. júní 1918 á Eiðinu, d. 13. nóvember 1945. Hann var fóstraður hjá Guðrúnu Eyjólfsdóttur á Reynivöllum í Suðursveit, A-Skaft., bjó síðast á Hraunbóli í V-Skaft.

II. Sambýliskona Einars var Guðrún Gísladóttir, f. 18. mars 1891 í Indriðakoti u. Eyjafjöllum, d. 12. nóvember 1925 á Litlu-Löndum.
Börn þeirra voru:
1. Sveinbjörn Þórarinn Einarsson, f. 19. júlí 1919 á Jaðri. Hann fór í fóstur að Skála u. Eyjafjöll eftir lát foreldra sinna 1925. Fósturforeldrar hans voru Gísli Jónsson bóndi og Sigríður Jónsdóttir húsfreyja. Hann var vinnumaður í Skála u. Eyjafjöllum, síðast bifreiðastjóri í Reykjavík, d. 8. desember 1995.
2. Þuríður Einarsdóttir, f. 15. september 1920 á Litlu-Grund, dó óskírð, en nefnd.
3. Þuríður Einarsdóttir, f. 22. maí 1922 á Litlu-Grund, síðar húsfreyja í Reykjavík, d. 14. mars 1992. Hún fór í fóstur að Núpi u. Eyjafjöllum eftir lát foreldra sinna 1925. Fósturforeldrar hennar voru Magnús Andrésson bóndi og Hafliðína Guðrún Hafliðadóttir húsfreyja.
4. Ingunn Eyrún Einarsdóttir, f. 28. júní 1925 á Litlu-Grund, finnst ekki síðan og mun hafa dáið ung.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók II – Ásahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Ásahreppur 2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.