Dagsbrún

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Dagsbrún t.h. á myndinni.

Húsið Dagsbrún sem byggt var árið 1911 stóð við Kirkjuveg 8b. Það fór undir hraun í gosinu 1973.Íbúðar- og verslunarhús. Íbúar Jóhann Antonsson Bjarnasen verslunarstjóri, Haraldur Guðnason, Jósef Thorlacius, Árni J. Johnsen rak um nokkurra ára skeið á jarðhæðinni Blómaverslunina Happó, ásamt Ingibjörgu, dóttur sinni sem síðan tók alfarið við rekstri verslunarinnar og var hún eftir það kennd við hana. Leifur Sigfússon rak þar lækningastofu. Á sjötta áratug síðustu aldar var húsið notað sem verbúð og fékk þá viðurnefnið Kórea en á þeim árum mun oft hafa verið þar róstusamt og þótti einhverjum minna á Kóreustríðið sem þá stóð sem hæst.Íbúar einnig Guðrún Einarsdóttir, f.1903, Anton Óskarsson f.1935, Steingerður Jóhannsdóttir f. 1919, Erna Fannbergsdóttir og Stefán Einarsson ásamt Valdísi og Fannberg

  • Verkefni Húsin undir hrauninu 2012.