Bragi Jónsson (Mörk)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Bragi Jónsson.

Bragi Jónsson frá Mörk, húsgagna- og húsasmíðameistari fæddist þar 30. ágúst 1931 og lést 11. mars 2004 á Hrafnistu í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Jón Tómasson sjómaður, f. 3. desember 1896, d. 28. september 1953, og kona hans Steinunn Árnadóttir húsfreyja, f. 5. júlí 1893, d. 6. september 1971.

Börn Steinunnar og Jóns:
1. Trausti Jónsson, f. 11. janúar 1917, d. 2. janúar 1994.
2. Ása Guðrún Jónsdóttir, f. 25. september 1922, d. 17. janúar 2010.
3. Margrét Jónsdóttir, f. 6. febrúar 1924, d. 25. desember 1992.
4. Tryggvi Jónsson, f. 11. mars 1925, d. 28. júlí 2014.
5. Bragi Jónsson, f. 30. ágúst 1931, d. 11. mars 2004.
6. Tómas Jónsson, f. 13. janúar 1933, d. 6. ágúst 1947.
7. Andvana stúlka, f. 11. september 1936.

Bragi var með foreldrum sínum í æsku.
Hann var sjómaður í fyrstu, en lærði til smiðs og varð húsgagna- og húsasmíðameistari. Bragi vann við húsasmíðar og starfaði aðallega við þá iðn í Vestmannaeyjum, en einnig víðar. Hann kom m.a. að smíði Steingrímsstöðvar í Sogi. Eftir alvarleg veikindi starfaði Bragi nokkurn tíma hjá Áhaldahúsi Vestmannaeyja.
Hann flutti til Reykjavíkur 1994 og dvaldi á Hrafnistu í Reykjavík síðustu ár sín.
Þau Herborg giftu sig 1961, eignuðust fjögur börn. Þau byggðu húsið að Hrauntúni 19 og bjuggu þar síðan, en skildu 1990.

I. Kona Braga, (7. október 1961, skildu 1990), var Herborg Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. maí 1936 á Herríðarhóli í Ásahreppi, d. 7. desember 2005.
Börn þeirra:
1. Sigríður Bragadóttir húsfreyja, kennari í Reykjavík, f. 4. júlí 1960. Maður hennar Kjartan Lilliendahl.
2. Jón Trausti Bragason tölvunarfræðingur í Hafnarfirði, f. 21. ágúst 1961. Kona hans Kristín Laufey Reynisdóttir.
3. Tómas Bragason húsasmiður, f. 14.júní 1964. Fyrrum sambýliskona hans Sigrún Edda Sigurðardóttir.
4. Hermann Kristinn Bragason bifvélavirki, f. 21. nóvember 1965. Kona hans Jóhanna Þorsteinsdóttir, f. 6. febrúar 1967.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.